Fotbolti.net
01.09.26 - 23:02
Brynjar Ingi Erluson

Efnilegasti miðjumaður Grikklands og einn annar til Hull (Staðfest)

Mouzakitis er kominn til Hull

Mouzakitis er kominn til Hull

Canon

Mynd: EPA

Nýliðar Hull City kláruðu félagaskiptagluggann með stæl, en félagið landaði tveimur leikmönnum rétt eftir gluggalok.
Hull hefur verið duglegt að styrkja leikmannahópinn í sumar. Félagið fékk þrjá leikmenn fyrr í dag og hefur nú bætt tveimur til viðbótar í hópinn.

Gríski miðjumaðurinn Christos Mouzakitis kemur frá Olympiakos fyrir 13 milljónir punda og skrifaði undir fimm ára samning. Hann er 19 ára og talinn efnilegasti miðjumaður Grikklands.

Mouzakitis vann netkosningu Gulldrengsverðlaunanna en hin hefðbundnu verðlaun eru veitt eftir kosningu íþróttafréttamanna. Það kemur talsvert á óvart að hann hafi endað hjá Hull en ekki Nottingham Forest, enda eru Forest og Olympiakos bæði í eigu Evangelos Marinakis. Hann er annar leikmaðurinn sem félagið fær frá Olympiakos á eftir markmanninum Kostas Tzolakis.

Hull hefur einnig keypt velska vængmanninn Sorba Thomas frá Stoke City fyrir 10,5 milljónir punda. Hann skrifaði undir fjögurra ára samning við nýliðana.

Thomas er átjándi leikmaðurinn sem Hull fær til félagsins í sumar. Ótrúlegur gluggi hjá nýliðunum.



Thomas kom frá Stoke

Thomas kom frá Stoke

Canon

Mynd: Hull City

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.