Fotbolti.net
01.09.26 - 22:01
Brynjar Ingi Erluson

Enzo kveður Chelsea - „Hef ekki verið á góðum stað“

Enzo kveður Chelsea - „Hef ekki verið á góðum stað“
Canon

Mynd: EPA

Argentínski miðjumaðurinn Enzo Fernandez hefur kvatt Chelsea með tilfinningaþrunginni færslu á Instagram.
Chelsea hefur samþykkt 125 milljóna punda tilboð Manchester City í Enzo Fernandez sem vildi ólmur ganga til liðs við Englandsmeistarana.

Stuðningsmenn Chelsea hafa verið ósáttir við að Argentínumaðurinn vilji yfirgefa félagið og meðal annars baulað á hann í leikjum. Enzo segist skilja viðbrögð þeirra en viðurkennir jafnframt að honum hafi ekki liðið vel undanfarna daga.

„Ég vil að þið vitið að síðustu dagar hafa ekki verið auðveldir fyrir mig og það er heldur ekki auðvelt að skrifa þetta. Sannleikurinn er sá að ég hef ekki verið á góðum stað.

„Fyrir þremur árum urðu Cobham og Stamford Bridge heimili mitt og fjölskyldu minnar. Ég myndaði sterk tengsl við fólkið, treyjuna og merki þessa ótrúlega félags,“ sagði Enzo sem rifjaði einnig upp góðu og erfiðu stundirnar hjá Chelsea.

„Lífið snýst um að taka ákvarðanir og nú þarf ég að taka mjög erfiða ákvörðun. Ég hef sagt það áður og segi það aftur: Mér þykir ótrúlega vænt um þetta félag og Chelsea mun alltaf eiga stað í huga mínum og hjarta.

„Ég skil líka hvernig fótboltinn virkar og veit hversu mikla ástríðu þið berið til félagsins, því ég er eins. Ef ég væri í ykkar stöðu myndi ég líklega hugsa það sama.

„Ég vil þakka ykkur öllum, þjálfarateyminu, læknunum, sjúkraþjálfurunum og öllum sem starfa á Cobham og hjá þessu frábæra félagi. Alltaf blár. Takk, Chelsea,“ sagði Enzo að lokum.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.