Fotbolti.net
01.09.26 - 14:06
Elvar Geir Magnússon

Fernandez-Pardo til Newcastle (Staðfest)

Mættur á St James' Park.

Mættur á St James' Park.

Canon

Mynd: Newcastle

Newcastle United hefur keypt kantmanninn Matias Fernandez-Pardo frá Lille fyrir 51 milljón punda.

Félagið hefur því keypt leikmenn í sumar fyrir alls 275 milljónir punda.

Þessi 21 árs gamli belgíski landsliðsmaður gengur til liðs við félagið með langtímasamningi og verður þar með áttundi leikmaðurinn sem kemur til félagsins í glugganum.

Fernandez-Pardo getur bæði spilað sem fremsti maður og á kantinum. Hann hefur skorað tólf mörk í 71 leik og verið liðsfélagi Hákonar Arnars Haraldssonar hjá Lille síðan 2024.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.