01.09.26 - 22:26
Brynjar Ingi Erluson
Franskur bakvörður í Leeds (Staðfest)

Mynd: Leeds

Mynd: Leeds
Leeds hefur fengið franska vinstri bakvörðinn Melvin Bard á láni með kaupákvæði.
Bard er 25 ára vinstri bakvörður sem getur einnig leikið sem vængbakvörður og mun veita Gabriel Gudmundsson samkeppni í vetur.
Eitt af markmiðum Leeds í félagaskiptaglugganum var að sækja annan vinstri bakvörð og hefur það nú tekist. Frakkinn kemur á láni út tímabilið en Leeds getur keypt hann fyrir 4,28 milljónir punda að því loknu.
Bard hefur leikið með Nice frá árinu 2021 og tvívegis komist í úrslit frönsku bikarkeppninnar með félaginu.

???? Bienvenue Melvin! pic.twitter.com/lQTaa82rFh
— Leeds United (@LUFC) September 1, 2026