01.09.26 - 12:52
Elvar Geir Magnússon
Gabriel Jesus til Barcelona (Staðfest)

Gabriel Jesus hefur svarað kallinu.

Mynd: Barcelona

Gabriel Jesus hefur svarað kallinu.

Mynd: Barcelona
Barcelona hefur staðfest kaup á Gabriel Jesus frá Arsenal.
Sky Sports segir að Spánarmeistararnir greiði 8,6 milljónir punda fyrir brasilíska framherjann.
Jesus er 29 ára og lék með Arsenal frá árinu 2022 þegar hann kom til félagsins frá Manchester City. Hann hefur verið orðaður við nokkur félög í sumar en hjólin fóru fyrst að snúast fyrir alvöru þegar Barcelona bankaði á dyrnar.
Barcelona sneri sér að Jesus eftir að ljóst varð að félaginu tækist ekki að sannfæra Atlético Madríd um að selja Julian Alvarez.
Jesus skoraði 32 mörk í 123 leikjum fyrir Arsenal og vann sinn fyrsta titil með félaginu þegar það varð Englandsmeistari í vor.
Meira á leiðinni...

When instinct calls, you answer. ?? pic.twitter.com/BgZktIcJ17
— FC Barcelona (@FCBarcelona) September 1, 2026