Fotbolti.net
01.09.26 - 06:58
Elvar Geir Magnússon

Gluggadagurinn: Arsenal reynir við Alvarez - City ræðir um Enzo

Glugganum verðiur lokað 22:00 í kvöld.

Glugganum verðiur lokað 22:00 í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net

Powerade
Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í enska boltanum kukkan 22:00. Möguleiki er þó að ganga frá skiptum eftir gluggalok ef viðeigandi pappírum hefur verið skilað inn.

Smelltu hér til að sjá allar (Staðfest) fréttirnar)
Það stærsta sem er í gangi:

Arsenal er enn að reyna að fá argentínska sóknarmanninn Julian Alvarez (26) frá Atletico Madrid og vinnur hörðum höndum að því að gera það mögulegt. (TeamTalk)

Manchester City er í viðræðum um Enzo Fernandez (25) en Chelsea vill ekki undir 120 milljónum punda fyrir hann. (BBC)

Everton samþykkti 65 milljóna punda tilboð Mancheser City í kantmanninn Iliman Ndiaye (26). (BBC)

Allt bendir til þess að Cody Gakpo (27) fari ekkert fyrir gluggalok. Manchester City reyndi að kaupa hollenska landsliðsmanninn en Liverpool vill ekki selja nema félagið fái inn annan sóknarleikmann til að fylla hans skarð. (BBC)

Mónakó samþykkti 40 milljóna punda tilboð Everton í bandaríska landsliðssóknarmanninn Folarin Balogun (25). (BBC)

Aðrir molar:

Jack Grealish (30) er á leið aftur á lán til Everton frá Manchester City. (Athletic)

Chelsea hefur samþykkt tilboð frá Tottenham í kantmanninn Mykhailo Mudryk (25) og varnarmanninn Tosin Adarabioyo (28), auk tilboðs frá ítalska félaginu Como í markvörðinn Robert Sanchez (28). (BBC)

Liverpool hefur hafnað 30 milljóna punda tilboði Nottingham Forest í enska unglingalandsliðsmanninn Trey Nyoni (19) sem er miðjumaður. (Athletic)

Borussia Dortmund íhugar að bjóða Jadon Sancho (26) samning með árangurstengdum launum. Ferill Sancho er í limbói og hann er án félags. (Bild)

Ajax hefur sent fyrirspurn til Sunderland vegna kantmannsins Simon Adingra (24) frá Fílabeinsströndinni. (Telegraph)

Fulham hefur rætt við Eintracht Frankfurt vegna áhuga á sænska miðjumanninum Hugo Larsson (22). (Fabrizio Romano)

Newcastle og Juventus hafa náð munnlegu samkomulagi um þýska framherjann Nick Woltemade (24) sem er á leið til Ítalíu á lánssamningi. (Florian Plettenberg)

Hull City er að kaupa miðjumanninn Tim Iroegbunam (23) frá Everton. (BBC)
Arsenal reynir að fá Julian Alvarez.

Arsenal reynir að fá Julian Alvarez.

Canon

Mynd: EPA

Nær City að landa Enzo?

Nær City að landa Enzo?

Canon

Mynd: EPA

Everton hefur samþykkt tilboð City í Ndiaye.

Everton hefur samþykkt tilboð City í Ndiaye.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.