Fotbolti.net
01.09.26 - 20:53
Brynjar Ingi Erluson

Gnonto og Goncalves til Fiorentina (Staðfest)

Gnonto er kominn til Fiorentina

Gnonto er kominn til Fiorentina

Canon

Mynd: Fiorentina

Ítalski vængmaðurinn Wilfried Gnonto og portúgalski sóknartengiliðurinn Pedro Goncalves eru komnir til Fiorentina. Gnonto kemur frá Leeds en Goncalves frá Sporting og er honum ætlað að fylla skarð Alberts Guðmundssonar.
Fiorentina hefur náð samkomulagi við Leeds um að fá Gnonto á láni út tímabilið með 18 milljóna punda kaupákvæði. Hann kom til Ítalíu í dag til að gangast undir læknisskoðun og ganga frá félagaskiptunum.

Leeds vildi þó ekki gefa grænt ljós á skiptin fyrr en félagið hefði fundið leikmann í hans stað. Það tókst þegar samkomulag náðist við Eintracht Frankfurt um franska U21 árs landsliðsmanninn Jean-Matteo Bahoya og í kjölfarið fékk Gnonto leyfi til að fara til Fiorentina.

Ítalska félagið hefur einnig fengið portúgalska sóknartengiliðinn Goncalves frá Sporting. Honum er ætlað að fylla skarð Alberts sem samdi við Lazio fyrr í kvöld.

Goncalves er 28 ára og getur leikið bæði fyrir aftan framherjann og á vængnum. Fiorentina greiðir Sporting 25 milljónir evra fyrir leikmanninn sem á fjóra A-landsleiki að baki fyrir Portúgal.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.