Fotbolti.net
01.09.26 - 16:05
Brynjar Ingi Erluson

Harvey Elliott til Valencia (Staðfest)

Harvey Elliott til Valencia (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Spænska félagið Valencia hefur staðfest komu enska miðjumannsins Harvey Elliott, en hann kemur á láni frá Liverpool út tímabilið.
Þessi 23 ára gamli leikmaður fer frá Liverpool á láni annað tímabilið í röð, en hann lék með Aston Villa á síðustu leiktíð og kom aðeins við sögu í níu leikjum.

Samkvæmt erlendum fjölmiðlum er samningur Valencia um Elliott hreinn lánssamningur án kaupákvæðis.

Elliott hefur unnið sex titla með Liverpool og varð einnig Evrópudeildarmeistari með Aston Villa á síðasta tímabili. Valencia leikur í La Liga en hefur aðeins fengið eitt stig úr fyrstu þremur leikjum sínum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.