Fotbolti.net
01.09.26 - 17:00
Brynjar Ingi Erluson

Liverpool lánar framherja í D-deildina (Staðfest)

Liverpool lánar framherja í D-deildina (Staðfest)
Canon

Mynd: Port Vale

Liverpool hefur sent framherjann Keyrol Figuera á lán til Port Vale í ensku D-deildinni.
Figueroa er tvítugur og á enn eftir að koma við sögu með aðalliði Liverpool.

Hann gekk til liðs við félagið frá Dallas í Bandaríkjunum árið 2018. Figueroa er fæddur í Hondúras og á einn landsleik að baki, en hann lék sinn fyrsta leik gegn Argentínu skömmu fyrir heimsmeistaramótið í sumar.

Liverpool hefur nú lánað hann til Port Vale til að afla sér meiri reynslu í meistaraflokksfótbolta og taka næstu skref á ferlinum.

Figueroa hefur leikið með U21 árs liði Liverpool undanfarin ár og staðið sig vel.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.