01.09.26 - 23:09
Brynjar Ingi Erluson
Maitland-Niles til Everton (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Everton hefur tilkynnt kaupin á enska miðjumanninum Ainsley Maitland-Niles frá franska félaginu Lyon.
Maitland-Niles er 29 ára og hefur leikið með Lyon undanfarin þrjú ár eftir að hafa komið til félagsins frá Arsenal.
Hann átti aðeins eitt ár eftir af samningi sínum og fékk Everton hann því á hagstæðu verði, eða fyrir 4,2 milljónir punda.
Miðjumaðurinn skrifaði undir þriggja ára samning við þá bláklæddu og er sjöundi leikmaðurinn sem David Moyes fær til félagsins í sumar.
Maitland-Niles á fimm A-landsleiki að baki fyrir England sem allir komu árið 2020. Hann lék þrjá leiki í Þjóðadeildinni, þar á meðal síðustu fimm mínúturnar gegn Íslandi, auk tveggja vináttulandsleikja.

We have completed the signing of Ainsley Maitland-Niles on a permanent transfer from Olympique Lyonnais for an undisclosed fee.
— Everton (@Everton) September 1, 2026
Welcome to Everton, Ainsley! ????