01.09.26 - 17:22
Brynjar Ingi Erluson
Moise Kean til Como (Staðfest)

Mynd: Como

Mynd: Como
Ítalski landsliðsmaðurinn Moise Kean er kominn til Como á láni frá Fiorentina. Como mun kaupa hann þegar lánsdvölinni lýkur.
Hinn 26 ára gamli Kean var mjög skýr við stjórn Fiorentina í sumar, en hann vildi yfirgefa félagið og hefur nú fengið ósk sína uppfyllta.
Como náði samkomulagi við Fiorentina á dögunum um að fá Kean á láni út tímabilið með 40 milljóna evra kaupskyldu. Hann er uppalinn hjá Juventus en hefur einnig leikið með Everton, Paris Saint-Germain og Hellas Verona.
Kean fór á kostum með Fiorentina tímabilið 2024-25 þegar hann skoraði 25 mörk, en náði ekki að fylgja því eftir á síðustu leiktíð og skoraði aðeins níu mörk þegar félagið lenti í fallbaráttu.
Kean er nú kominn til Como og fær þar tækifæri til að leika í Meistaradeildinni, en félagið tekur þátt í keppninni í fyrsta sinn í sögunni.

Como 1907 is pleased to announce the signing of Italian international forward Moise Kean from @acffiorentina on an initial loan, with an obligation to make the move permanent.
— Como1907 (@Como_1907) September 1, 2026
Official statement ?? https://t.co/PJKnFXS9Xp pic.twitter.com/4F30ROYFUT