01.09.26 - 21:11
Brynjar Ingi Erluson
Mudryk og De Zerbi sameinaðir á ný (Staðfest)

Mudryk er kominn til Tottenham

Mynd: Tottenham

Mudryk er kominn til Tottenham

Mynd: Tottenham
Tottenham hefur landað úkraínska vængmanninum Mykhailo Mudryk á láni frá Chelsea.
Hinn 25 ára gamli Mudryk endurnýjar þar kynni sín við Roberto De Zerbi en þeir störfuðu áður saman hjá Shakhtar í Úkraínu.
Mudryk hefur ekki leikið keppnisleik síðan í desember 2024. Hann var úrskurðaður í fjögurra ára bann í apríl á þessu ári eftir að hafa fallið á lyfjaprófi en því var aflétt undir lok júlí og hefur Úkraínumaðurinn æft með Chelsea síðan.
Leeds og Strasbourg voru meðal þeirra félaga sem vildu fá Mudryk en hann þurfti ekki að hugsa sig tvisvar um þegar símtalið frá De Zerbi barst. Hann kemur á láni út tímabilið með 75 milljóna punda kaupákvæði.
„Ég veit nákvæmlega hvað Misha getur fært liðinu eftir að hafa unnið með honum áður. Hann hefur gæðin til að breyta leikjum með hraða sínum og hæfileikum í stöðunni einn gegn einum. Þetta er gríðarlega spennandi og hæfileikaríkur leikmaður.“
„Ég mun gera miklar kröfur til Misha og það er undir okkur komið að hjálpa honum að finna bestu útgáfuna af sjálfum sér. Ef okkur tekst það getur hann orðið gríðarlega mikilvægur fyrir liðið. Ég er hæstánægður með að hann hafi ákveðið að koma hingað og get ekki beðið eftir að vinna með honum á ný,“ sagði De Zerbi.

We are delighted to announce the signing of Ukraine international forward Mykhailo Mudryk on a season-long loan ??
— Tottenham Hotspur (@SpursOfficial) September 1, 2026
???? https://t.co/sTK5X6I4wJ pic.twitter.com/NmK8jJTtm8