Fotbolti.net
01.09.26 - 07:20
Ívan Guðjón Baldursson

Perri í Tórínó (Staðfest)

Perri í Tórínó (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Ítalska félagið Torino er búið að krækja sér í nýjan markvörð sem kemur úr röðum Leeds United.
Lucas Perri kemur á lánssamningi með kaupmöguleika. Torino borgar eina milljón evra til að fá Perra og getur fest kaup á honum fyrir fjórtán milljónir til viðbótar, sem er sama verð og Leeds borgaði til að kaupa hann úr röðum Lyon í fyrrasumar.

Perri spilaði 20 leiki fyrir Leeds en tapaði byrjunarliðsbaráttunni við Karl Darlow. Úrvalsdeildarfélagið festi svo kaup á James Trafford í sumar.

Perri er 28 ára gamall og með þrjú ár eftir af samningi hjá Leeds. Hann verður aðalmarkvörður hjá Torino þar sem Franco Israel er að glíma við erfið meiðsli á öxl.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.