Fotbolti.net
01.09.26 - 19:43
Brynjar Ingi Erluson

Sanchez og tveir aðrir farnir frá Chelsea (Staðfest)

Sanchez og tveir aðrir farnir frá Chelsea (Staðfest)
Canon

Mynd: Como

Þrír leikmenn eru farnir frá Chelsea, en þeir Deivid Washington og Dario Essugo eru komnir til Strasbourg á meðan spænski markvörðurinn Robert Sanchez er farinn til Como.
Washington er 21 árs Brasilíumaður sem kom til Chelsea frá Santos árið 2023. Hann lék aðeins þrjá leiki fyrir Lundúnafélagið og hefur nú verið seldur til Strasbourg þar sem hann skrifaði undir samning til ársins 2031.

Portúgalski miðjumaðurinn Dario Essugo er einnig genginn til liðs við Strasbourg en hann kemur á láni út tímabilið. Essugo var orðaður við Hull en nýliðarnir ákváðu að leita annað.

Sanchez farinn til Como

Chelsea hefur jafnframt lánað Robert Sanchez til Como út tímabilið eftir að hann missti byrjunarliðssætið. Spánverjinn átti hræðilegan leik í 3-2 sigrinum gegn Fulham fyrir rúmri viku og í kjölfarið fékk Chelsea argentínska landsliðsmarkvörðinn Emi Martínez frá Aston Villa. Hann kom beint inn í byrjunarliðið.

Sanchez er 28 ára og ætti að styrkja Como verulega í baráttunni í ítölsku deildinni í vetur.





Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.