01.09.26 - 23:29
Brynjar Ingi Erluson
Sunderland landaði Fofana (Staðfest) - Strá salti í sár Palace

Mynd: Sunderland

Mynd: Sunderland
Sunderland tókst að landa belgíska vængmanninum Malick Fofana frá Lyon, en félagið fékk frest til þess að skila inn pappírum og hafa skiptin nú verið staðfest.
Mikil barátta var um hinn 21 árs gamla Fofana undir lok félagaskiptagluggans. Arsenal hafði verulegan áhuga á honum en taldi verðmiðann of háan og dró sig úr kapphlaupinu.
Sunderland lét þá til skarar skríða og fékk um 30 milljóna punda tilboð sitt samþykkt. Fofana gekkst undir læknisskoðun en að henni lokinni blandaði Crystal Palace sér í baráttuna og virtist leikmaðurinn þá hallast að Lundúnafélaginu.
Palace vildi hins vegar senda Fofana í ítarlegri læknisskoðun vegna áhyggna af ökklameiðslum hans. Á sama tíma hækkaði Sunderland launatilboð sitt til leikmannsins og bauð umboðsmanni hans hærri greiðslu.
Það dugði til og ákvað Fofana að ganga til liðs við Sunderland sem staðfesti félagaskiptin rétt í þessu. Belginn skrifaði undir fimm ára samning við félagið.
„Það var alltaf Sunderland,“ skrifaði félagið við tilkynninguna og skaut þar með létt á Palace.

It was always Sunderland.
— Sunderland AFC (@SunderlandAFC) September 1, 2026
Belgium winger Malick Fofana joins from Olympique Lyonnais on a long-term contract! ???? pic.twitter.com/1VGPDAhBBA