Fotbolti.net
01.09.26 - 22:11
Brynjar Ingi Erluson

Tottenham fær annan frá Chelsea (Staðfest)

Tottenham fær annan frá Chelsea (Staðfest)
Canon

Mynd: Tottenham

Tottenham náði að klófesta enska varnarmanninn Tosin Adarabioyo frá Chelsea fyrir 7 milljónir punda, stuttu eftir gluggalok.
Félagaskiptaglugginn lokaði klukkan 22:00 en félög geta enn gengið frá skiptum hafi þau sótt um frest til að skila inn viðeigandi gögnum.

Tottenham tókst að landa hinum 28 ára gamla Tosin Adarabioyo sem eykur breiddina í varnarlínu liðsins. Hann kemur í stað Kevin Danso sem gekk til liðs við Sunderland.

Adarabioyo hefur leikið með Chelsea undanfarin tvö ár en þar áður gerði hann góða hluti hjá Fulham. Hann er tíundi leikmaðurinn sem Tottenham fær í glugganum og væntanlega sá síðasti.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.