01.09.26 - 16:59
Brynjar Ingi Erluson
Tvíburabróðir Arsenal-mannsins á leið til Palace?

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Sambandsdeildarmeistarar Crystal Palace eru að reyna kaupa hollenska miðjumanninn Quinten Timber frá franska félaginu Marseille fyrir gluggalok.
Palace hefur hafið viðræður við Marseille um hinn 25 ára gamla Quinten og er félagið sagt vongott um að landa miðjumanninum. Það er Mike McGrath hjá Telegraph sem segir frá þessum tíðindum.
Quinten er uppalinn hjá bæði Feyenoord og Ajax en gekk til liðs við Marseille í byrjun þessa árs.
Hann er tvíburabróðir Jurrien Timber sem leikur með Englandsmeisturum Arsenal.
Quinten á að baki 13 A-landsleiki og eitt mark fyrir Holland. Hann var í landsliðshópnum á heimsmeistaramótinu í sumar og lék tvo leiki, gegn Japan og Marokkó.