01.09.26 - 17:56
Brynjar Ingi Erluson
Woltemade til Juventus (Staðfest)

Mynd: Juventus

Mynd: Juventus
Þýski framherjinn Nick Woltemade er kominn til Juventus á láni frá Newcastle United út tímabilið.
Newcastle keypti Woltemade fyrir um 70 milljónir punda á síðasta ári og var honum ætlað að fylla skarð Alexander Isak sem gekk til liðs við Liverpool.
Þjóðverjinn varð um leið dýrasti leikmaður í sögu Newcastle en náði sér aldrei almennilega á strik og var iðulega látinn leika utan sinnar bestu stöðu undir stjórn Eddie Howe.
Woltemade sat á bekknum í fyrstu tveimur deildarleikjum Newcastle á tímabilinu en fékk tækifæri í byrjunarliðinu í deildabikarnum. Hann óskaði eftir að fara annað í leit að stærra hlutverki og er nú genginn til liðs við Juventus á láni út tímabilið.
Juventus greiðir 3,5 milljónir evra fyrir lánið en ekkert kaupákvæði er í samningnum og mun Woltemade því snúa aftur til Newcastle næsta sumar.

Ufficiale | Nick Woltemade è un nuovo giocatore bianconero ????
— JuventusFC (@juventusfc) September 1, 2026
I dettagli ?? https://t.co/1GKDZyjWZ0
Powered @Jeep pic.twitter.com/6xXQQitGg6