Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 01. október 2020 23:38
Ívan Guðjón Baldursson
Arteta: Rúnar Alex mun spila
Mynd: Arsenal
Rúnar Alex Rúnarsson var ónotaður varamaður er Arsenal sigraði Liverpool og kom sér í 8-liða úrslit deildabikarsins fyrr í kvöld.

Rúnar Alex var keyptur til að fylla í skarð Emiliano Martinez og er hann varamaður fyrir Bernd Leno.

Rúnar Alex mun því verja mark Arsenal í bikarkeppnum en Leno hefur verið að gera það hingað til vegna þess að Rúnar er að glíma við smávægileg meiðsli og þarf smá aðlögunartíma.

„Alex er bara búinn að vera með okkur í eina viku og hefur verið að glíma við smávægilegt vandamál. Hann þarf smá aðlögunartíma hérna áður en hann spilar. Þeir munu báðir spila á tímabilinu," sagði Mikel Arteta, stjóri Arsenal, eftir sigur í vítaspyrnukeppni gegn Liverpool.
Athugasemdir
banner
banner