Fotbolti.net
28.11.26 - 14:56
Brynjar Ingi Erluson

Ashley Cole að taka við ensku D-deildarliði?

Ashley Cole að taka við ensku D-deildarliði?
Canon

Mynd: EPA

Ashley Cole gæti verið á leið í sitt fyrsta starf sem aðalþjálfari á Englandi, en frá þessu greinir Alex Crook hjá talkSPORT.
Cole, sem er einn besti vinstri bakvörður í sögu Englands, hefur komið víða við í þjálfun undanfarin ár.

Hann starfaði með Frank Lampard hjá Derby, Chelsea og Everton, auk þess að hafa aðstoðað Wayne Rooney hjá Birmingham og Lee Carsley hjá U21 árs landsliði Englands.

Í mars á þessu ári tók hann við Cesena á Ítalíu, en lét af störfum í lok tímabilsins. Þá hætti hann einnig hjá U21 árs landsliðinu.

Nú gæti hann hins vegar verið á leið í sitt fyrsta stjórastarf á Englandi. Samkvæmt Crook er Cole efstur á óskalista Bristol Rovers í D-deildinni, en búist er við að félagið reki Steve Evans á næstu dögum eftir 3-1 tap gegn Tranmere Rovers í dag.

Bristol Rovers hefur átt erfitt uppdráttar á tímabilinu og situr í 18. sæti D-deildarinnar með 19 stig, aðeins fjórum stigum frá fallsæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.