Fotbolti.net
28.11.26 - 15:22
Brynjar Ingi Erluson

Vardy ekki í hópnum hjá Burnley - Mættur á leik Leicester

Vardy ekki í hópnum hjá Burnley - Mættur á leik Leicester
Canon

Mynd: EPA

Jamie Vardy er ekki í leikmannahópi Burnley gegn Millwall í ensku B-deildinni í dag, en í staðinn er hann mættur í áhorfendastúkuna á leik Leicester gegn Mansfield í C-deildinni.
Vardy fékk frí frá Burnley í dag eftir að Fabio Celestini, nýr stjóri félagsins, ákvað að velja hann ekki í leikmannahópinn.

Fjölskylda Vardy hafði ákveðið að mæta á leik Leicester gegn Mansfield í C-deildinni, en svo skemmtilega vill til að einmitt í dag eru ellefu ár liðin frá því að Vardy skoraði í ellefu leikjum í röð í ensku úrvalsdeildinni.

Því hefur verið haldið fram að það sé hrein tilviljun að Vardy hafi ekki verið í hópnum hjá Burnley í dag. Hann hafi fengið þær fregnir með stuttum fyrirvara og því ákveðið að skella sér með fjölskyldunni á leik Leicester. Tímasetningin vekur þó óneitanlega athygli.

Burnley er enda í bullandi fallbaráttu í ensku B-deildinni og hefði eflaust ekki verið verra að hafa reynslubolta á borð við Vardy til taks á varamannabekknum.

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough18+1235
2Wolves18+1235
3Stoke City17+835
4Birmingham17+1532
5West Brom17+1032
6Southampton18+1831
7QPR17+728
8Blackburn18+128
9Swansea17+327
10Sheffield Utd17+626
11Portsmouth17+326
12Norwich18+825
13West Ham17+1324
14Wrexham17-122
15Charlton Athletic18-820
16Bristol City17-1019
17Cardiff City17-518
18Millwall17-618
19Bolton17-1118
20Lincoln City18-1616
21Preston NE18-1215
22Watford17-1515
23Burnley17-1111
24Derby County17-2110
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.