28.11.26 - 15:12
Brynjar Ingi Erluson
Logi fagnaði sigri

Logi Tómasson er fyrirliði Samsunspor

Mynd: Samsunspor

Logi Tómasson er fyrirliði Samsunspor

Mynd: Samsunspor
Logi Tómasson, nýr fyrirliði Samsunspor, leiddi lið sitt til 3-1 sigurs á Genclerbirligi í tyrknesku úrvalsdeildinni í dag.
Víkingurinn var á dögunum gerður að fyrirliða Samsunspor og hefur því fengið aukna ábyrgð á erfiðum tímum hjá liðinu.
Samsunspor er sem stendur í fallsæti, en hefur hægt og bítandi verið að saxa á forskot liðanna fyrir ofan sig.
Liðið fagnaði 3-1 sigri í dag og er nú í 16. sæti deildarinnar með tíu stig, aðeins einu stigi frá öruggu sæti.
Logi var að sjálfsögðu í byrjunarliðinu og lék allan leikinn.
Lúkas Petersson stóð þá í marki varaliðs Hoffenheim sem tapaði 2-0 fyrir Essen í þýsku C-deildinni. Hoffenheim situr í sjöunda sæti með 22 stig.
Ólafur Hjaltason var einnig í eldlínunni með Aarhus Fremad sem tapaði 1-0 fyrir Köge í dönsku B-deildinni. Ólafur lék í vörn liðsins, sem er í fimmta sæti með 19 stig.