Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 01. október 2020 14:31
Elvar Geir Magnússon
Southgate um ungstirnin: Þeir eru búnir að læra sína lexíu
Mason Greenwood er leikmaður Manchester United.
Mason Greenwood er leikmaður Manchester United.
Mynd: Getty Images
Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands, segir að með því að vera ekki valdir í landsliðshópinn hafi Phil Foden og Mason Greenwood tekið út sína refsingu fyrir agabrotið á Íslandi.

Þessir ungu leikmenn eru ekki í enska landsliðshópnum sem er að fara að mæta Wales, Belgíu og Danmörku í þessum mánuði.

„Við höfum sent skýr skilaboð til allra okkar leikmanna um að svona hlutir ganga ekki upp hjá enska landsliðinu. Svo þurfum við að koma þessum strákum aftur inn í hlutina, ungt fólk gerir mistök og þessir strákar hafa lært sína lexíu," segir Southgate.

„Þeir eru ekki valdir í þetta sinn en það gefur þeim tækifæri á að komast aftur upp á tærnar hjá sínum félagsliðum og fara að njóta fótboltans aftur. Ég ræði við þá eftir þennan landsleikjaglugga og þá bara um það hvernig þeim er að ganga í fótboltanum."
Athugasemdir
banner
banner
banner