Fotbolti.net
11.09.26 - 21:09
Haraldur Örn Haraldsson

Einkunnir í bikarúrslitunum: Fyrirliðinn magnaður

Einkunnir í bikarúrslitunum: Fyrirliðinn magnaður
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mjólkurbikarinn

Breiðablik varð bikarmeistari í kvöld eftir 2-1 sigur gegn Aftureldingu. Höskuldur Gunnlaugsson og Kristófer Ingi Kristinsson skoruðu mörk Breiðabliks áður en að Óli Valur Ómarsson skoraði sjálfsmark. Höskuldur var yfirburða bestur í leiknum.

Lestu um leikinn: Afturelding 1 - 2 Breiðablik

Afturelding

Arnar Daði Jóhannesson - 6

Vantaði meiri reynslu í hann í fyrsta marki Breiðabliks þegar Ásgeir Helgi stendur fyrir honum í rangstöðu. Þar átti hann að láta vita af því. Annars gerði hann vel og gat lítið gert í seinna markinu, varði einu sinni mjög vel frá Þorleifi úr dauðafæri.

Axel Óskar Andrésson - 5

Átti eitt til tvö klaufamistök en það kom ekkert mikið úr því hjá andstæðingnum. Annars stóð hann vörnina vel.

Gunnar Bergmann Sigmarsson - 4 (65)

Gerði mistök sem Blikar hefðu átt að skora úr en hann var bara heppinn. Átti svo á köflum erfitt með sóknarþunga Blika á hans kanti.

Aron Elí Sævarsson - 7

Var í smá basli í fyrri hálfleik, en kom mjög sterkur inn í seinni hálfleikinn. Var þá hættulegur á kantinum og átti skotið sem varð að sjálfsmarkinu.

Kristinn Freyr Sigurðsson - 3 (79)

Kristinn átti alls ekki sinn besta leik, var ekki að finna samherjana sína þegar hann reyndi að skapa eitthvað. Átti eitt skot í seinni sem Anton varði hins vegar vel.

Bart Kooistra - 4

Það var orka í Bart en full oft sem feilsending hjá honum batt enda á sóknir Aftureldingar.

Joacim Holtan - 5

Fékk nokkrar mjög fínar stöður en fór á köflum mjög illa með þær.

Elmar Kári Enesson Cogic - 5

Oft á tíðum líflegasti sóknarmaður Aftureldingar en var í sama veseni og samherjar sínir. Að ná að klára lokasendinguna. Magnús Már og félagar hjá Aftureldingu ákváðu að ljúga til um að hann væri meiddur og gæti ekki spilað leikinn. Þetta bragð heppnaðist alls ekki hjá þeim.

Óðinn Bjarkason - 5 (65)

Komst nokkrum sinnum í álitlegar stöður en náði ekki að koma með þessa loka sendingu sem skilaði færinu.

Bjartur Bjarmi Barkason - 6

Orkumikill á miðjunni en gaf ekki nógu mikið af sér þegar Afturelding var að nálgast teiginn.

Andi Hoti - 6

Bjargaði einu sinni stórkostlega í fyrri hálfleik, ekki hægt að kenna honum eitthvað um mörkin.

Varamenn

Birkir Már Sævarsson (65) 5

Haukur Örn Brink (65) 6

Sævar Atli Hugason (79) spilaði ekki nóg

Breiðablik

Anton Ari Einarsson - 7

Gerði ein mistök í fyrri hálfleik sem hefði getað farið illa, en eftir það var hann mjög öruggur. Gat ekkert gert í sjálfsmarkinu.

Ásgeir Helgi Orrason - 6

Þurfti að verjast töluvert í seinni hálfleik og gerði það nokkuð vel.

Höskuldur Gunnlaugsson - 9 Maður leiksins

Skoraði fyrsta markið, og var langmesti drifkrafturinn í Blikaliðinu. Harður varnarlega og skapandi sóknarlega.

Óli Valur Ómarsson - 6

Var nokkuð líflegur í fyrri hálfleik en það dróg mikið af honum. Svo varð hann fyrir því óláni að skora sjálfsmark.

Aron Bjarnason - 6 (71)

Fékk lítið að gera fram á við, en þegar hann komst í stöður skapaði hann ekki mikið. Var hins vegar duglegur upp og niður kantinn í pressu og vörn.

Anton Logi Lúðvíksson - 7 (71)

Var mjög öruggur og góður í stutta spilinu. Var líka harður í horn að taka varnarlega.

Hlynur Freyr Karlsson - 7

Það var oft erfitt fyrir Mosfellinga að komast framhjá honum á miðjunni. 

Davíð Ingvarsson - 7

Ef eitthvað gerðist í kantaspili Blika á var það langoftast því Davíð var að búa það til með hraða sínum.

Viktor Örn Margeirsson - 7 (87)

Eins og félagi hans hliðin á honum í vörninni þá var mikið að gera í seinni hálfleik. Hann stóð þá vakt vel.

Kristófer Ingi Kristinsson - 8

Skorar seinna mark Blika, gerir mjög vel í því. Tekur skallann eftir horn, sem fer í samherja. Hann fær hann strax aftur og er fljótur að hugsa, og klárar vel. Leiddi línuna einnig vel og kom öðrum inn í spilið.

Þorleifur Úlfarsson - 5 (80)

Fékk dauðafæri sem hann klúðraði, og annað sem hann fór illa með. Fyrir utan þau tvö skipti sást lítið til hans.

Varamenn

Viktor Karl Einarsson (71) 6

Kristinn Jónsson (71) 6

Jónatan Guðni Arnarsson (80) spilaði ekki nóg

Ívar Örn Árnason (87) spilaði ekki nóg

Dómari - Ívar Orri Kristjánsson: 5

Tvö risa atvik í fyrri hálfleik. Fyrsta mark Breiðabliks á ekki að standa vegna rangstæðu og hægt að færa sterk rök fyrir því að Anton Logi ætti að fá rautt í fyrri. Fyrir utan það fannst mér hann með góð tök á leiknum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.