Ásgeir Helgi: Ég er í einhverri maníu


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Þetta er bara 'fokking' sturlað, ég er í einverri maníu, ég veit ekki hvað ég á að segja. Þetta er bara sturlað," sagði Ásgeir Helgi Orrason eftir 2-1 sigur gegn Aftureldingu í úrslitaleik Mjólkurbikarsins.
Breiðablik kom inn í leikinn mikið sigurstranglegra liðið þar sem þeir eru í efri hluta Bestu deildarinnar á meðan Afturelding er í Lengjudeildinni.
„Þetta er náttúrulega 'tricky' en Eldingin er bara drullu gott lið, það vita það allir og hafa átt frábært tímabil. Sama hvað lið það er, þá bara, við hefðum bara klárað það og bara vel gert hjá okkur," sagði Ásgeir.
Afturelding vann sig inn í leikinn í seinni hálfleik og settu mikla pressu á að jafna leikinn.
„Þeir komu svolítið á okkur, en það er oftast í fótbolta þegar þú ert 2-0 yfir þá fer augnablikið með hinu liðinu. Það er bara gangurinn á fótbolta og við stóðum þetta vel. Það kemur eitthvað ógeðslegt mark á Óla, það er sjálfsmark sem segir sig sjálft. Við bara gerðum mjög vel og kláruðum þetta," sagði Ásgeir.
