Fotbolti.net
11.09.26 - 14:29
Elvar Geir Magnússon

Um 4.800 miðar farnir - Afturelding hefur fyllt sinn hluta aðalstúkunnar

Aron Elí Sævarsson og Höskuldur Gunnlaugsson. Fyrirliðarnir.

Aron Elí Sævarsson og Höskuldur Gunnlaugsson. Fyrirliðarnir.

Canon

Mynd: KSÍ

Mjólkurbikarinn
Afturelding og Breiðablik mætast í úrslitum Mjólkurbikarsins á Laugardalsvelli í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19:00 og verður að sjálfsögðu í beinni textalýsingu hér á Fótbolti.net.

Afturelding leikur til úrslita í fyrsta sinn í sögu félagsins en Breiðablik í fjórða sinn. Blikar hafa einu sinni orðið bikarmeistarar, árið 2009.
Lestu um leikinn: Afturelding 0 - 0 Breiðablik
Miðasala á leikinn hefur gengið vel og sérstaklega þá af hálfu stuðningsmanna Aftureldingar. Félagið hefur tilkynnt að uppselt sé í sinn helming aðalstúkunnar.

Opnað verður fyrir sölu í Sýnarstúkuna svokölluðu.

„KSÍ er að vinna í miðakerfinu. Verður klárt á næstu mínútum! Tryggið ykkur miða og takið þátt í þessum sögulega leik," segir í tilkynningu Aftureldingar.

Samkvæmt upplýsingum frá KSÍ hafa verið seldir um 4.800 miðar á leikinn. Á síðasta ári voru skráðir áhorfendur á bikarúrslitaleiknum 3979 en þá mættust Valur og Vestri.

Horfðu á upphitunarþátt Mjólkurbikarsins

Um 4.800 miðar farnir - Afturelding hefur fyllt sinn hluta aðalstúkunnar
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.