Fotbolti.net
12.09.26 - 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Alonso: Joao Pedro minnir mig á Benzema

Alonso: Joao Pedro minnir mig á Benzema
Canon

Mynd: EPA

Joao Pedro, framherji Chelsea, hefur byrjað tímabilið mjög vel en hann hefur komið að fjórum mörkum í fyrstu þremur deildarleikjunum.

Pedro var valinn leikmaður mánaðarins í ágúst. Xabi Alonso, stjóri Chelsea, hrósaði brasilíska framherjanum í hástert í viðtali við Football.London.
„Hann hefur verið frábær. Ekki bara fótboltalega heldur sem persóna líka. Hann er með sterk markmið á árinu til að eiga gott tímabil, skora mörg mörk og er kominn með tilfnefningu. Ég er ekki hissa en mjög ánægður með hvernig leikmann við erum með í Joao," sagði Alonso.

„Hann minnir mig á Benzema á margan hátt. Hann er góður inn í teig og fyrir utan, hann er goður á vinstri, að skalla, hann er alhliða framherji. Hann er snjall og er enn ungur og getur bætt sig."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.