Fotbolti.net
11.09.26 - 23:03
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Draumur 15 ára Höskulds rættist - „Brennimerkt minning"

Draumur 15 ára Höskulds rættist - „Brennimerkt minning"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mjólkurbikarinn
„Þetta er búin að vera erfið keppni. Manni er búið að langa í þennan úrslitaleik fyrst og fremst því þetta er geðveikt svið, geðveik upplifun allur dagurinn og kvöldið verður pottþétt geðveikt," sagði Höskuldur Gunnlaugsson í viðtali við Fótbolta.net eftir að Breiðablik tryggði sér Mjólkurbikarinn eftir sigur á Aftureldingu í kvöld.
Höskuldur var að spila sinn fyrsta bikarúrslitaleik en þetta var annar bikarmeistaratitill félagsins. Sá fyrsti kom árið 2009 en þá fylgdist Höskuldur með úr stúkunni.

„Þetta er búið að vera mjög langsótt. Þetta er atrenna númer fjórtán í tímabilum talið. Víkingur er aðeins búið að brengla myndina eins og það sé sjálfsagt að mæta hérna. Það er sjaldgæft og erfitt og þess vegna er mjög mikilvægt að fara vel með það með því að tryggja sigurinn við fyrsta tækifæri," sagði Höskuldur í viðtali á RÚV eftir leikinn.

„Það eru pottþétt börn og unglingar hérna sem þetta mun vera brennimerkt minning fyrir eins og var fyrir mig 15 ára. Þetta getur oft verið íkveikja að einhverju stærra báli og vonandi tekur framtíðarkynslóðin við keflinu svo maður geti loksins hætt þessu," sagði Höskuldur léttur.

Höskuldur eftir Mjólkurbikar sigurinn - „Það verður Lebowski mjólk í kvöld"

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.