Fotbolti.net
11.09.26 - 14:14
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Davíð Smári mjög ósammála Þóroddi: Ég get ekki skilið það

Davíð Smári mjög ósammála Þóroddi: Ég get ekki skilið það
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin
Atvik sem átti sér stað snemma í leik Njarðvíkur og Þróttar á miðvikudag er mikið á milli tannanna á þeim sem fylgjast með íslenska boltanum.

Þórhallur Ísak Guðmundsson, markvörður Þróttar, braut á Oumar Diouck, sóknarmanni Njarðvíkur, fyrir utan vítateig Þróttar. Ekkert var hins vegar dæmt og er ljóst að Laddi, eins og Þórhallur er oftast kallaður, var stálheppinn. Óumdeilt er að hann gerðist brotlegur en deilt er um hvort hann hefði átt að fá gult eða rautt spjald.

Þóroddur Hjaltalín, dómarastjóri KSÍ, segir að eftir skoðun á atvikinu hefði rétt niðurstaða verið að dæma aukaspyrnu og veita Ladda gula spjaldið.
Brotið umtalaða í Njarðvík - „Laddi hefði átt að fá gult“
TENGT EFNI

Brotið umtalaða í Njarðvík - „Laddi hefði átt að fá gult“

Þessu er Davíð Smári Lamude, þjálfari Njarðvíkur, mjög ósammála. Fótbolti.net sló á þráðinn til þjálfarans eftir svör dómarastjórans.

„Ég er búinn að liggja aðeins yfir þessu. Við einblínum hins vegar á það að við erum fókusaðir á að mæta Þrótti aftur á sunnudaginn, áhuginn er minni á því að velta mér upp úr því sem þegar er gert," segir Davíð Smári sem hélt áfram:

„En eftir að hafa skoðað þetta mörg hundruð sinnum þá er fyrir mér verið að koma í veg fyrir augljóst marktækifæri. Þegar IFAB metur það þá eru nokkrir þættir sem skipta máli, fyrir það fyrsta fjarlægð frá marki, í öðru lagi stefna bolta og hlaup sóknarmanns, líkur á því að sóknarmaður nái að halda stjórn á boltanum og staðsetning varnarmanna. Það sést mjög skýrt á þessu myndbandi að Oumar Diouck er kominn í mjög góða stöðu og í leið í átt að marki, næsti varnarmaður er fyrir aftan hann og það er enginn markmaður í markinu. Jú jú, boltinn berst aðeins út til hliðar en það eru samt allir fyrir aftan Oumar og hann er með mikinn hraða. Ég get ekki skilið hvernig það er ekki verið að koma í veg fyrir augljóst marktækifæri," segir Davíð Smári.

En ef horft er á þetta út frá brotinu einu og sér, hvernig sér það við þér?

„Ef við tökum staðsetninguna og marktækifærið út úr menginu þá er ég samt á því að þetta sé rautt spjald. Ef tæklingin er skoðuð þá er hann með báðar lappir á undan sér og brotið sem slíkt verðskuldar rautt spjald."

Davíð Smári bar atvik úr fyrri leik Njarðvík og Þróttar undir fréttamann til samanburðar. Þá fékk Baldur Hannes Stefánsson, fyrirliði Þróttar, beint rautt spjald fyrir tæklingu og sami dómari dæmdi leikinn.

„Þetta var á sama velli, sami dómari og Þróttur missti mann af velli í fyrri hálfleik. Það er að mínu mati nákvæmlega eins tækling nema á miðjum vellinum og þar er ekki verið að neita okkur um augljóst marktækifæri."

Fréttamaður bar atvikið sem Davíð ræðir undir nokkra aðila og það er ljóst að það eru ekki sammála honum um að tæklingarnar séu eins, en atvikið sem hann vísar í má sjá hér:

„Ég ber virðingu fyrir Þóroddi og mér finnst flott hjá honum að vera verja sína leikmenn (dómarana), en rétt skal vera rétt. Í þessu svari hans til ykkar segir hann að þetta sé mat okkar að þetta sé gult spjald. Ég veit ekki betur en að í hvert skipti sem um vafaatriði sé að ræða þá séu myndbönd send út til IFAB og þeir fá svo svar við því. Ég skal glaður halda kjafti þegar það svar kemur og hann getur vitnað í það. Annars er ég algjörlega á því að þetta sé rautt spjald. Þetta er skeytingarlaust brot, Oumar snýr einhvern veginn á hlið í hann og fær markmanninn af fullum krafti í sig með lappir á undan sér. Það er verið að setja öryggi Oumar í hættu, það er farið í stoðfótinn hans. Af hverju tekur hann þunga snertingu? Af því að 100 kílóa náungi er að koma á fullri ferð með tvær fætur á undan sér. Mér finnst þetta mjög veikt svar hjá Þóroddi og ég set stórt spurningarmerki við að hann sé að verja sinn mann þarna."

„Staðreyndin er sú að Gunnar er góður dómari og ég ber mikla virðingu fyrir honum, en ég held að honum hafi ekki verið neinn greiði gerður með því að vera settur á þennan leik."


Sérðu þetta þannig, ef þú metur snertingu Oumars, að það sé annað fyrir hann að undirbúa sig undir högg frá markmanni heldur en varnarmanni sem þú býst við að taki tæklingu?

„Já, allt öðruvísi."

„Ég er búinn að tala við helvíti marga og margir hringt í mig - menn sem hafa miklar skoðanir á fótbolta. Það eru allir sammála um að þetta er fyrir það fyrsta algjörlega klárt brot og það er verið að deila um það hvort þetta sé rautt eða gult spjald. Við skulum ekki gleyma því að dómari leiksins dæmir ekki neitt. Þá veltir maður fyrir sér, hvernig er það hægt?"


Einbeitingin á næsta leik
Davíð segir að fókusinn sé nú kominn á næsta leik.

„Við spiluðum gríðarlega góðan leik á móti Þrótti í síðasta leik. Við vorum óheppnir að einhverju leytinu að tapa þeim leik. Við vorum gríðarlega kraftmiklir."

„Við erum í einvígi við ofboðslega gott lið Þróttar og hlökkum til að mæta þeim á sunnudag. Þar er einbeitingin. Við erum ekki að fókusa lengur á það sem liðið er og því sem við getum ekki breytt. Það er mikil spenna í hópnum fyrir leiknum. Planið er að eiga jafngóðan ef ekki betri leik en síðast. Þetta eru gríðarlega jöfn og skemmtileg lið."

„Við mætum yfirvegaðir en spenntir til leiks, við vonandi fáum góða mætingu á sunnudag frá okkar fólki. Ég er mjög ánægður með stuðninginn í síðasta leik og það er mikið gott í gangi í Njarðvík; erum að fara í bikarúrslitaleik kvennamegin. Það er mikil orka í okkur, ætlum að ná árangri og toppa okkur á sunnudaginn. Ég er ekki í vafa um að umgjörðin hjá þeim í Laugardalnum verður til fyrirmyndar og upplifunin verður frábær fyrir stuðningsmenn Njarðvíkur!"
segir Davíð Smári.

Þróttur vann fyrri leikinn 1-0 en liðin mætast aftur á PEPSI vellinum í Laugardal á sunnudag í seinni leiknum. Sigurvegarinn í einvíginu fer í úrslitaleik um sæti í Bestu deildinni.
Þóroddur Hjaltalíner dómarastjóri KSÍ.

Þóroddur Hjaltalíner dómarastjóri KSÍ.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Davíð Smári mjög ósammála Þóroddi: Ég get ekki skilið það
Canon

Mynd: Skjáskot

Gunnar Freyr dæmdi leikinn.

Gunnar Freyr dæmdi leikinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þórhallur Ísak - Laddi.

Þórhallur Ísak - Laddi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Oumar Diouck var kominn í góða stöðu.

Oumar Diouck var kominn í góða stöðu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Við erum ekki að fókusa lengur á það sem liðið er og því sem við getum ekki breytt.

Við erum ekki að fókusa lengur á það sem liðið er og því sem við getum ekki breytt.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Vísar í tæklingu sem Baldur Hannes fékk rautt fyrir gegn Njarðvík á sama velli.

Vísar í tæklingu sem Baldur Hannes fékk rautt fyrir gegn Njarðvík á sama velli.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það er mikil orka í okkur, ætlum að ná árangri og toppa okkur á sunnudaginn

Það er mikil orka í okkur, ætlum að ná árangri og toppa okkur á sunnudaginn

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.