Fotbolti.net
12.09.26 - 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ísland í dag - Nokkrir spennandi úrslitaleikir

Ísland í dag - Nokkrir spennandi úrslitaleikir
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik vann Mjólkurbikar karla í gær en úrslitaleikur Mjólkurbikars kvenna fer fram í dag. Grindavík/Njarðvík og Þróttur R. eigast við á Laugardalsvelli klukkan 16:00. Grindavík/Njarðvík leikur til úrslita í fyrsta sinn en Þróttur í annað sinn. Þróttarar komust einnig í úrslit árið 2021 en töpuðu þá 4-0 fyrir Breiðabliki.

Mikil spenna er í Lengjudeild kvenna þar sem kemur í ljós hvaða lið fer upp með Gróttu. KR er í öðru sæti með 32 stig, tveimur meira en Haukar fyrir lokaumferðina. KR tekur á móti Keflavík klukkan 14:00 en á sama tíma fá Haukar botnlið Tindastóls í heimsókn.

Lokaumferð 2. deildar karla fer einnig fram og þar er spenna bæði á toppi og botni. Selfoss og Kári berjast um að fylgja Haukum upp en Selfyssingar standa betur að vígi. Þeir eru í öðru sæti með 42 stig, þremur meira en Kári, og nægir því jafntefli til að tryggja sér sæti í Lengjudeildinni.

Kári fær deildarmeistara Hauka í Akraneshöllina á meðan Selfoss mætir KFG, sem er í harðri fallbaráttu. KFG er í tíunda sæti með 22 stig, tveimur meira en Þróttur Vogum sem er í fallsæti. Vogamenn mæta Magna og þurfa að vinna sinn leik og treysta á að KFG tapi til að bjarga sér.

Í lokaumferð 3. deildar karla kemur í ljós hvaða lið fylgir meisturum Víðis upp. KH er í öðru sæti með 41 stig, jafnmörg og Tindastóll en með töluvert betri markatölu. Reynir Sandgerði er einnig í baráttunni, í fjórða sæti með 39 stig.

KH heimsækir KF, Reynir fær KÁ í heimsókn og Tindastóll mætir Víði.

Þrjú lið eiga á hættu að falla með Árbæ. KÁ er í næstneðsta sæti með 22 stig, Ýmir er sæti ofar með 23 stig og Augnablik í níunda sæti með 24 stig. Augnablik tekur á móti Sindra, KÁ sækir Reyni heim og Ýmir heimsækir KV.

Í 2. deild kvenna ræðst hvaða tvö lið fara upp í Lengjudeildina. Öll fjögur liðin í A-riðlinum eiga enn möguleika.

Topplið Fjölnis, sem er með 36 stig, tekur á móti Vestra sem er í fjórða sæti með 33 stig. Vestri þarf að vinna með að minnsta kosti sjö marka mun til að komast upp fyrir Fjölni.

Einherji og Fylkir mætast í hinum leiknum. Einherji er í öðru sæti með 34 stig en Fylkir sæti neðar með 33 stig. Markatalan gæti því ráðið miklu um niðurstöðuna.

Í 5. deild karla leika Hamrarnir og Skallagrímur til úrslita um deildarmeistaratitilinn. Bæði lið hafa þegar tryggt sér sæti í 4. deild.
laugardagur 12. september

Lengjudeild kvenna
13:00 HK-Völsungur (Kórinn)
14:00 Haukar-Tindastóll (BIRTU völlurinn)
14:00 Grótta-ÍA (Vivaldivöllurinn)
14:00 FHL-Selfoss (Fjarðabyggðarhöllin)
14:00 KR-Keflavík (Meistaravellir)

Mjólkurbikar kvenna
16:00 Grindavík/Njarðvík-Þróttur R. (Laugardalsvöllur)

2. deild karla
14:00 Þróttur V.-Magni (Vogaídýfuvöllur)
14:00 Kári-Haukar (Akraneshöllin)
14:00 Selfoss-KFG (JÁVERK-völlurinn)
14:00 Víkingur Ó.-KFA (Ólafsvíkurvöllur)
14:00 Dalvík/Reynir-Hvíti riddarinn (Dalvíkurvöllur)
14:00 Kormákur/Hvöt-Fjölnir (Blönduósvöllur)

3. deild karla
11:30 KV-Ýmir (KR-völlur)
14:00 KF-KH (Ólafsfjarðarvöllur)
14:00 Augnablik-Sindri (Fífan)
14:00 Tindastóll-Víðir (Sauðárkróksvöllur)
14:00 Reynir S.-KÁ (Brons völlurinn)
14:00 Höttur-Árbær (Rafey-völlurinn)

4. deild karla
14:00 Hamar-Úlfarnir (Grýluvöllur)
14:00 KFR-Árborg (Helluvöllur)

2. deild kvenna - A úrslit
13:00 Fylkir-Einherji (tekk VÖLLURINN)
13:00 Fjölnir-Vestri (Extra völlurinn)

5. deild karla - Úrslit
16:00 Hamrarnir-Skallagrímur (VÍS völlurinn)
Ísland í dag - Nokkrir spennandi úrslitaleikir
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Grótta17+2841
2KR17+2832
3Haukar17+430
4Selfoss17+729
5HK17+1127
6FHL17+724
7Keflavík17+621
8ÍA17+321
9Völsungur17-1015
10Tindastóll17-843
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.