Ívar segir að bikarinn hafi haft áhrif á gengið - „Meira en við þorðum að viðurkenna"


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Tilfinningin er bara æðisleg, æðislegt kvöld, frábær fótbolti spilaður við fullkomnar aðstæður, geggjaður stuðningur. Þetta er bara allt upp á tíu í dag," sagði Ívar Örn Árnason leikmaður Breiðabliks eftir 2-1 sigur gegn Aftureldingu í úrslitaleik Mjólkurbikarsins í kvöld.
Ívar þurfti að byrja leikinn á bekknum í dag, en Breiðabliks liðið byrjaði leikinn af miklum krafti. Hann segist hafa verið viss um það frekar snemma að þeir myndu taka þetta.
„Orkan í hópnum í aðdragandanum, æfingavikan, maður bara hafði það á tilfinningunni að við værum með meðbyr þó svo að Aftureldingar menn væru að setja alla pressuna á okkur. 'We rose to the occasion'," sletti Ívar en hann meinar að þeir hafi staðist undir pressunni sem var á þeim. „Það er það sem við gerðum í kvöld, þetta var frábær liðs frammistaða, við vorum þéttir, við vorum agaðir, en sýndum líka flæði fram á við þegar við þurftum á því að halda. Þannig þetta var bara frábær liðs frammistaða í dag," sagði Ívar.
Það var langt síðan Breiðablik hafði unnið bikar fyrir kvöldið í kvöld. Ívar vann hins vegar bikarinn með KA fyrir tveimur árum og gat því eitthvað miðlað af sinni reynslu inn í hópinn.
„Já, vissulega eitthvað. Bara að brosa, út með kassann, við erum ekkert eðlilega góðir í fóbolta, við vitum það allir. Við erum ekki búnir að vera nógu góðir að sýna það upp á síðkastið, en það sáu það allir í kvöld að þegar við setjum upp alvöru leik, þá erum við ekkert eðlilega góðir. Þá eru fáir sem standast okkur snúninginn," sagði Ívar.
Ívar segir að tilfinningin er töluvert öðruvísi núna en þegar hann vann bikarinn með KA 2024.
„Þetta er smá mismunand, maður finnur það að þegar þetta er uppeldisfélagið manns þá er þetta smá mismunandi. Ég er að horfa á strákana sem eru uppaldir og upplifa þetta í fyrsta skiptið, og reyndar sumir í annað skiptið. Þannig ég held við getum verið allir verið sammála um það að þetta er auðvitað öðruvísi með uppeldisklúbbnum þínum. En þetta er ekki vond tilfinning ég get alveg sagt þér það," sagði Ívar.
Breiðablik hefur valdið vonbrigðum í deildinni í sumar, en þessi úrslit breyta miklu hvað varðar tímabilið þeirra.
„Við ætluðum að reyna að tryggja okkur Evrópu sama hvernig þessi leikur myndi fara. Það er búið að hafa meiri áhrif á okkur en við kannski þorðum að viðurkenna varðandi þennan leik. Svo var umtalið um það að hann átti að vera í ágúst og svo átti að færa hann. Það vilja allir vera heilir og toppa á þessum tímapunkti. Þannig jú jú, ef við horfum yfir sumarið þá unnum við dollu, og það er enginn að fara skæla yfir því," sagði Ívar.
