Maggi laug að mömmu sinni fyrir bikarúrslitaleikinn: Ég tók enga sénsa, sorrý mamma


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Við fylltum stúkuna hérna, allur bærinn mættur. Stórkostleg stemming og stórkostlegur stuðningur. Ótrúlega svekkjandi að geta ekki gefið stuðningsmönnunum það sem þeir eiga skilið að vinna þennan leik. Mér fannst við af mörgu leyti vera betri í leiknum. Við vorum miklu betri í teignum þeirra og í kringum teiginn þeirra, hefðum átt að vera effektívari og að sama skapi þá er þetta tvö frábær slútt hjá þeim úr föstum leikatriðum."
Voru leikmenn Aftureldingar stressaðir?
„Nei, alls ekki, við vorum ekki allan tímann. Bara fótbolti, boltinn dettur fyrir þá tvisvar og þeir klára. Boltinn er brögðóttur og stundum færðu ekki það sem þú átt skilið og mér fannst við eiga skilið meira í dag, en til hamingju Breiðablik."
Afturelding spilar í Bestu Deildinni á næsta ári, er hægt að byggja ofan á þessu?
„Já alveg hundrað prósent. Þú sérð að við séum að keppa við einn besta og stærsta félag á landinu undanfarin ár. Frábær frammistaða hjá okkur, við þurfum að gefa aðeins meira í til þess að vinna svona lið."
„Þetta season er frábært hjá okkur. Við hefðum geta gert það en þá betra með að vinna í dag. Ef þú hefðir sagt fyrir tímabilið að við myndum vinna Lengjudeildina og fara í bikarúrslit, þá hefði ég tekið því."
Það kom fram að Elmar Cogic væri meiddur og myndi ekki spila, en hann byrjaði leikinn.
„Hann var fit og stóð sig vel í dag. Þetta var bara smá leikþáttur og ég bið allavegana Mosfellinga sem við þurftum að ljúga að, afsökunar. Við þurftum að taka smá leikþátt til þess að koma blikum á óvart og ég laug meira að segja að mömmu í gær að hann væri ekki með. Núna leik ég tveimur skjöldum í þessum leik í dag. Ég tók enga sénsa, sorrý mamma. Stundum þarf maður að spila leikþátt og við gerðum það í þetta skipti og reyndum að koma blikum á óvart í kjölfarið."
Anton Logi fékk gult spjald á 25. mínútu, Maggi var ekki sáttur að Anton fékk bara gult og mótmælti því.
„Þessi tækling er bara… hann er seinn í boltann og mér fannst hann fara í ökklann. Í öllum deildum í heimi er rautt spjald, ef við værum með VAR þá er þetta mögulega rautt spjald. Ég er búin að sjá mynd af atvikinu, ég held hjá ykkur á Fotbolta.net beint eftir leik. Ég get ekki betur séð en að hann fari beint í ökklann og það er fyrir mér að ógna öryggi mótherja, í hættu og bara rautt spjald. En við vorum aldrei að fá neina stóra dóma með okkur í dag, það var aldrei að fara gerast. Kannski lélegt kall hjá mér og ég eitthvað æstur. "
„Hann var aldrei að fara að gefa rautt spjald, sama hvað hafði gerst. Það er aldrei þannig. Jú jú ég er kannski fúll og tapsár eftir leikinn, boltinn er 30 sek í leik í uppbótatímanum og hann bætir engu við. Allir svona litlir dómar fannst mér það ekki vera væb með okkur í því og það er bara hluti af því, þeir eru stærri undanfarin ár en við og við þurfum að komast þangað."
„Það var ekki dómgæslan sem fór með leikinn, alls ekki. Hann var aldrei að fara gefa rautt spjald, það er punkturinn minn."


Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
