12.09.26 - 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Birkir Már efast um að hann haldi áfram

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Birkir Már Sævarsson sagði í viðtali við Hörð Magnússon á RÚV eftir tap Aftureldingar gegn Breiðabliki í úrslitum Mjólkurbikarsins í gær að hann væri líklega búinn að spila sinn síðasta leik.
Birkir er 41 árs og hefur átt gríðarlega farsælan feril hér heima, í atvinnumennsku og með landsliðinu.

„Eins og staðan er núna hef ég engan áhuga á því að fara æfa í vetur og allt það. Ég ætla að leyfa rykinu að setjast, taka mér frí í einhverja mánuði og sjá svo hvort ég hafi einhvern áhuga á því að fara reima á mig skóna og fara æfa í frosti. Ég efast um það," sagði Birkir Már.
Albert Brynjar Ingason og Bjarni Guðjónsson voru sérfræðingar í settinu á RÚV yfir leiknum. Þeir slógu á létta strengi og sögðust ekki trúa Birki. Það kom mörgum á óvart að Birkir Már hafi byrjað á bekknum í gær.
„Það er kannski erfitt að líta framhjá því að hann er að verða 42 ára. Hann er með ótrúlegan líkama og hefur verið ótrúlegur styrkur fyrir liðið. Ef eitthvað sem væri gott í svona leik þá er það reynslan, hún fleytir þér oft langt í svona leik. Það kom mér á óvart að hann byrjaði ekki inná," sagði Bjarni.
„Þegar hann kom inn á kom hann með þessa ró sem vantaði. Hann og Haukur Brink komu vel inn í þennan leik," sagði Albert.