11.09.26 - 21:58
Magnús Atlason
Ólafur Ingi: Erum að vinna einn af tveimur titlum í boði
Auglýsing

Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik eru bikarmeistarar eftir 2-1 sigur á Aftureldingu. Fótbolti.net náði tali af Ólafi Inga Skúlasyni, þjálfara Breiðabliks, eftir leik.
Lestu um leikinn: Afturelding 1 - 2 Breiðablik
"Hvernig er tilfinningin?"
"Mjög góð, bara léttur, unnum fyrir þessu og gerðum þetta virkilega vel. Ég er gríðarlega stoltur af liðinu."
Höskuldur Gunnlaugsson kom Blikum yfir snemma leiks.
"Við höfum ekki verið að byrja leiki neitt sérstaklega vel svo það var mikið lagt upp úr því, að byrja með krafti. Mér fannst fyrri hálfleikur mjög góður hjá okkur, við vorum með þennan leik."
Afturelding settu mikla pressu á Blika í leit að jöfnunarmarki. "Varstu áhyggjufullur?"
"Eftir að 2-1 markið kemur inn þá fer um mann klárlega. En ég held að Anton Ari hafi þurft að verja eitt skot fyrir það. Svo eftir það fá þeir þetta mark og auðvitað setja þeir smá þrýsting á okkur en við vörðum markið okkar vel og sýndum dugnað."
Deildin hefur verið vonbrigði fyrir Blika. "Bjargar þetta tímabilinu?"
"Við erum að vinna einn af tveimur titlum í boði sem er náttúrulega frábært. Bjargar það hinu? Það er auðvitað fullt af hlutum sem við viljum laga og þurfum að laga og ætlum að laga. Auðvitað fyrir tímabilið vildum við vinna titil, búnir að ná því markmiði. Það er klárt, við þurfum að bæta margt og við vitum það alveg. En það tekur það ekki af okkur að við erum búnir að eiga frábæra bikarkeppni. Svo aftur hrós á strákanna og við getum notið þess í kvöld."
Horfðu á viðtalið í heild sinni efst í fréttinni.