Fotbolti.net
11.09.26 - 23:01
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson

Fyrsti titillinn á ferlinum: Semi bjóst við því miðað við hvernig Breiðablik hefur verið síðustu ár

Auglýsing
Fyrsti titillinn á ferlinum: Semi bjóst við því miðað við hvernig Breiðablik hefur verið síðustu ár
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn

Breiðablik vann Aftureldingu 2-1 í bikarúrslitum Mjólkurbikarsins. Leikmaður Breiðabliks, Jónatan Guðni Arnarsson, ræddi við Fotbolta.net eftir leik.

Lestu um leikinn: Afturelding 1 - 2 Breiðablik

„Auðvitað stórkostlega, geggjað að vinna titil, fyrsti titillinn minn so far á ferlinum, tilfinningin er mögnuð."

„Maður svona semi bjóst við því miðað við hvernig Breiðablik hefur verið síðustu ár, en ekkert gefins, þetta er geðveikt."

Er Jónatan ánægður með stuðninginn?

„Maður heyrði ótrúlega mikið í þeim. Mér fannst við heyra miklu meira í þeim en stuðningsmönnum Aftureldingar."

Hvernig er að spila á móti Aftureldingu?

„Þeir eru mjög góðir, ég hef spilað á móti þeim nokkrum sinnum þegar ég var að spila í Lengjudeildinni, þeir hafa alltaf veið mjög góðir. Flottir í fótbolta og geta spilað góðan bolta, við vissum alveg fyrir leikinn að þetta myndi ekki vera einhver auðveldur leikur."

Var Jónatan stressaður fyrir leik?

„Mér fannst við myndum taka þetta, við erum með menn sem hafa gert þetta áður oft í gegnum ferilinn sinn. Þeir eru með svo mikla reynslu og maður sér á þeim að þeir hafa gert þetta svo oft. Það gefur manni smá svona pepp að hafa þá þarna."

Fyrsti titillinn á ferlinum: Semi bjóst við því miðað við hvernig Breiðablik hefur verið síðustu ár
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.