11.09.26 - 22:32
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Albert: Ekki á því að þessi bikar ætti að bjarga starfinu hans Óla

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Breiðablik er Mjólkurbikarmeistari eftir sigur á Aftureldingu á Laugardalsvelli í kvöld.
Tímabilið hjá Blikum hefur ekki verið gott í deildinni en Albert Brynjar Ingason, sérfræðingur á RÚV, sagði að þessi titill ætti ekki að bjarga starfi Ólafs Inga Skúlasonar.

Lestu um leikinn: Afturelding 1 - 2 Breiðablik
„Þessi bikar bjargar tímabilinu fyrir félagið, fara í Evrópu sem er risastórt. Það mætti segja að þetta bjargi þjálfaranum líka. Ég er reyndar ekki á því að þessi bikar ætti að bjarga starfinu hans Óla. Deildn er mælikvarði á hvar liðið er statt," sagði Albert
„Ég vona að liðið noti restina af tímabilinu til að undirbúa sig fyrir næsta tímabil. Að finna aftur hvað gerir það að liði sem Óli Ingi vill að þetta lið sé. Ekki eitthvað sem einhver þjálfari sem var með liðið á undan honum var með," sagði Bjarni Guðjónsson.
Albert sagði að það þurfi margt að breytast til að Breiðablik geti barist um Íslandsmeistaratitilinn.
„Þetta hjálpar þeim gífurlega mikið að fá inn leikmenn og bæta fjárhaginn. Það eru nokkrir leikmenn sem hafa verið í aðalhlutverki, það er ákveðin endurnýjun hjá þeim. Það eru líka öðruvísi áherslur með Ólafi Inga sem manni hefur ekki fundist eins og hópurinn sé sammála. Það verður frólegt að sjá hvaða leikmenn þeir taka inn og verða áfram. Það er fullt af leikmönnum sem geta tekið næsta skref," sagði Albert.
„Þeir eru á eftir Víkingum, maður hefur séð þá taka skref til baka. Það þarf að gera helling og hvort Óli sé rétti maðurinn eða ekki til að koma þeim á þann stað. Þrátt fyrir að þeir taka titilinn í dag þá er eitthvað sem þeir þurfa að ræða innan félagsins og meta hans samband við leikmenn því það hefur verið eins og leiðtogar liðsins séu ekki opnir fyrir hugmyndafræði þjálfarans. Heilt yfir miðað við það sem maður hefur séð frá lykilmönnum eru þeir ekki að fara berjast um titilinn aftur ef þetta verður svona."