Fotbolti.net
12.09.26 - 10:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Emery: Garnacho þarf tíma

Emery: Garnacho þarf tíma
Canon

Mynd: Aston Villa

Unai Emery, stjóri Aston Villa, hefur trú á því að Alejandro Garnacho muni sýna sitt rétta andlit á þessu tímabili.

Garnacho gekk til liðs við Villa á láni frá Chelsea eftir brösugt gengi á sínu fyrsta tímabili hjá Lundúnarliðinu. Hann hefur aðeeins spilað 31 mínútu í fyrstu fjórum leikjum Villa á tímabilinu.
„Hann er með jákvætt hugarfar. Það er mjög mikilvægt. Hann vill þetta og hann gefur allt í þetta. Nú þarf hann tíma. Tíma til að leggja hart að sér á hverjum degi og hann mun bæta sig," sagði Emery.

„Svo þarf hann að sýna það í leikjum. Hann hefur ekki spilað nóg en ég sé að hann er að bæta sig smám saman. Aðalatriðið er að ná stöðugleika og þá trúi ég að hann muni komast í sitt besta form."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.