Fotbolti.net
24.11.26 - 21:47
Brynjar Ingi Erluson

Stóri Sam um Andra Lucas: Hann lítur út fyrir að vera algjör skepna!

Andri Lucas Guðjohnsen

Andri Lucas Guðjohnsen

Canon

Mynd: Skjáskot

Sam Allardyce, fyrrum stjóri Blackburn Rovers, hefur farið fögrum orðum um Andra Lucas Guðjohnsen og frábært gengi hans með Blackburn. Hann telur Andra eiga góða möguleika á að komast í ensku úrvalsdeildina ef hann heldur áfram á sömu braut og rifjaði einnig upp kynni sín af föður hans, Eiði Smára Guðjohnsen, sem hann þjálfaði á sínum tíma.
Andri Lucas óstöðvandi - „Þetta er fyrir þig Tony!“
TENGT EFNI

Andri Lucas óstöðvandi - „Þetta er fyrir þig Tony!“

Andri Lucas er einn heitasti framherji Evrópu um þessar mundir, en hann hefur skorað ellefu mörk í ensku B-deildinni á tímabilinu og verið meðal þeirra allra bestu þegar kemur að því að nýta marktækifærin.

Hann hefur verið orðaður við fjölmörg félög í ensku úrvalsdeildinni og gæti tækifærið til að taka næsta skref á ferlinum komið strax í janúarglugganum.

Allardyce ræddi Andra Lucas í hlaðvarpsþættinum No Tippy Tappy, þar sem hann fór fögrum orðum um framherjann og föður hans, Eið Smára, sem hann þjálfaði hjá Bolton Wanderers í kringum aldamótin.

„Hann lítur út fyrir að vera algjör skepna og ef hann hefur erft eitthvað af hæfileikum föður síns, þá er það frábært. Eiður er einn besti framherji sem ég hef þjálfað á ferlinum.“

„Eiður var ótrúlega hæfileikaríkur strákur og því miður þurfti ég að selja hann til Chelsea eftir að Bolton mistókst að komast upp um deild í gegnum umspilið. Það er því mikil ánægja að sjá son hans spila á Englandi og vonandi á hann eftir að eiga jafn farsælan feril og pabbi sinn.“

„Hann virðist vera að blómstra svolítið seint, enda orðinn 24 ára, en það skiptir engu máli. Hann er að skora mörk og ef hann heldur áfram á þessari braut, sérstaklega með hliðsjón af því sem faðir hans afrekaði hér á Englandi, þá munu menn telja að hann geti vel ráðið við úrvalsdeildina og gefa honum tækifæri þar,“
sagði Allardyce.

Allardyce var einnig sérstaklega hrifinn af markinu sem Andri skoraði gegn Burnley um helgina og gat ekki stillt sig um að skjóta létt á Eið Smára í leiðinni.

„Ég var mjög hrifinn af markinu hans því hann tók frábært hlaup inn fyrir vörnina. Pabbi hans var nú ekki mikið fyrir að gera slíkt!“ sagði hann ennfremur.
Sam Allardyce er hrifinn af Andra

Sam Allardyce er hrifinn af Andra

Canon

Mynd: EPA

Eiður er einn besti framherji sem Allardyce hefur þjálfað

Eiður er einn besti framherji sem Allardyce hefur þjálfað

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.