24.11.26 - 20:11
Brynjar Ingi Erluson
Ronaldo skoraði og er þrettán mörkum frá markmiðinu

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Cristiano Ronaldo færist sífellt nær því markmiði sínu að skora þúsund mörk á ferlinum, en hann skoraði fyrra mark Al Nassr í 2-1 sigri á Al Sadd í Meistaradeild Asíu í kvöld.
Portúgalinn fiskaði vítaspyrnu á 12. mínútu leiksins, fór sjálfur á punktinn og skoraði af öryggi með föstu skoti.
Hann kom boltanum aftur í netið eftir rúman hálftíma, en í það skiptið var markið dæmt af vegna rangstöðu.
Ronaldo hefur nú skorað 987 mörk á ferlinum og vantar því aðeins 13 mörk til að ná þúsund marka áfanganum. Haldi hann áfram á sömu braut gæti hann náð markmiði sínu strax í janúar, enda á Al Nassr fjölmarga leiki fram undan.
Al Sadd jafnaði metin á 22. mínútu með marki Mohammed Waad, en hann fékk síðan að líta rauða spjaldið undir lok fyrri hálfleiks.
Það reyndist Al Sadd dýrkeypt því Joao Felix skoraði sigurmark Al Nassr snemma í síðari hálfleik með stórkostlegri bakfallsspyrnu og tryggði liðinu stigin þrjú.
Al Nassr situr í fimmta sæti með níu stig eftir fjóra leiki.

???? 1000 gole do?ru ad?m ad?m!
— D-Smart Spor (@SporSmart_) November 24, 2026
?? Cristiano Ronaldo, 13. Dakikada penalt?dan kaydetti?i gol ile Al Nassr’? Al Sadd kar??s?nda 1-0 öne geçiriyor! https://t.co/JjVujmjw2T
JOÃO FÉLIX DE BICICLETA ???? https://t.co/Ctjf7ysbbx
— B24 (@B24PT) November 24, 2026