Fotbolti.net
24.11.26 - 20:39
Brynjar Ingi Erluson

Webb um rauða spjaldið á Yoro: Held að flestir telji þetta rétta ákvörðun

Leny Yoro

Leny Yoro

Canon

Mynd: EPA

Howard Webb, yfirmaður dómaramála í ensku úrvalsdeildinni, segir að ákvörðun Sam Barrott um að reka Leny Yoro af velli í 4-0 sigri Liverpool á Manchester United hafi ekki verið augljóslega röng.
Leikbanni Yoro aflétt
TENGT EFNI

Leikbanni Yoro aflétt

Yoro var rekinn af velli á upphafsmínútum leiksins þegar hann braut aftan á Alexander Isak sem var að sleppa í gegnum vörn United.

Rauða spjaldið þótti mjög umdeilt þar sem fyrsta snerting Isak á boltanum var þung og boltinn fór nokkuð langt frá honum. Því var deilt um hvort Yoro hefði í raun svipt Svíann upplögðu marktækifæri.

Enska fótboltasambandið hefur nú fellt leikbann Yoro úr gildi, en Webb segir í þættinum Match Officials Mic'd Up að ákvörðunin um að reka hann af velli hafi ekki endilega verið röng.

„Spurningin þarna var hvort Isak hefði náð boltanum á undan Lammens. Dómarinn horfði á atvikið og taldi að Isak myndi ná til boltans. Það var hans mat á vellinum.“

„Þetta var ekki atvik þar sem hægt var að segja með vissu að dómarinn hefði gert augljós mistök og þess vegna fékk ákvörðun hans að standa.“

„Ég held að flestir geti skilið þessa ákvörðun þar sem Isak er mjög fljótur og á fullri ferð í átt að boltanum. Það er hins vegar annað sjónarhorn sem bendir til þess að Lammens hefði getað orðið á undan. Það má alveg deila um þetta, en ákvörðunin var ekki augljóslega röng,“
sagði Webb.

Í þættinum var einnig spiluð upptaka úr VAR-herberginu þar sem John Brooks, VAR-dómari leiksins, fór yfir atvikið og útskýrði hvers vegna hann taldi ekki ástæðu til að breyta ákvörðun dómarans.

„Okei, Isak er á fullri ferð og heldur hraðanum í átt að boltanum. Hann er því líklegur til að ná honum. Það er alls ekki augljóst að hann hefði ekki náð boltanum og þess vegna tel ég rétt að staðfesta ákvörðunina um að hann hafi verið sviptur upplögðu marktækifæri,“ sagði Brooks í upptökunni.
Howard Webb er yfirmaður dómaramála í úrvalsdeildinni

Howard Webb er yfirmaður dómaramála í úrvalsdeildinni

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.