Fotbolti.net
24.11.26 - 20:57
Brynjar Ingi Erluson

Wirtz hrósaði Iraola og virtist senda Slot pillu

Wirtz hrósaði Iraola og virtist senda Slot pillu
Canon

Mynd: EPA

Florian Wirtz, leikmaður Liverpool, segist njóta sín í botn þessa dagana og fer fögrum orðum um Andoni Iraola, stjóra félagsins.
Wirtz hefur verið á miklu skriði undanfarið eftir frekar hæga byrjun á tímabilinu.

Hann var maður leiksins í 4-0 stórsigri Liverpool á Manchester United um helgina, þar sem hann skoraði eitt mark, lagði upp annað og skapaði fimm stór færi fyrir liðsfélaga sína.

Wirtz segist vera farinn að finna sig almennilega hjá Liverpool og njóti þess að spila fótbolta þessa dagana. Hann hrósaði Iraola og hans áhrifum en virtist um leið skjóta á Arne Slot, forvera hans, sem náði ekki alveg því besta úr Þjóðverjanum.

„Ég er í mínu besta formi síðan ég kom til Liverpool. Ég er líka farinn að átta mig betur á enska boltanum og hvernig deildin virkar. Mér líður ótrúlega vel þessa dagana, ég nýt þess að spila fyrir Liverpool og er mjög ánægður með hvernig hlutirnir eru að ganga.“

„Ég nýt þess virkilega að spila undir stjórn Iraola. Hann er frábær þjálfari og hefur sýnt það í gegnum allan sinn feril.“

„Hann er að hjálpa mér að ná aftur því formi sem ég var í fyrir tveimur árum, þegar ég spilaði mjög góðan fótbolta. Ég finn hvað hann hefur mikla trú á mér og það skiptir mig gríðarlega miklu máli,“
sagði Wirtz.

Þjóðverjinn hefur einnig fengið að heyra það að hann brosi sjaldan inni á vellinum, en sjálfur telur hann að fólk hafi fengið svolítið ranga mynd af sér.

„Ég hef heyrt fólk tala um að ég brosi ekki mikið, en kannski er það bara vegna þess að það þekkir mig ekki. Ég er yfirleitt mjög jákvæður og glaður náungi, en þegar ég er inni á vellinum reyni ég að ná því besta út úr sjálfum mér og halda einbeitingunni. Þess vegna lítur kannski út fyrir að ég brosi ekki nógu mikið!“ sagði Wirtz í lokin.
Iraola hefur hjálpað Wirtz mikið

Iraola hefur hjálpað Wirtz mikið

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.