24.11.26 - 22:08
Brynjar Ingi Erluson
Meistaradeildin: Arsenal og Man City fengu aðeins eitt stig - Real Madrid skoraði fimm

Arsenal gerði jafntefli við Dortmund

Mynd: EPA

Cherki kom Man City til bjargar

Mynd: EPA

Mbappe skoraði tvennu í endurkomu Real Madrid

Mynd: EPA

Arsenal gerði jafntefli við Dortmund

Mynd: EPA

Arsenal og Manchester City hafa eflaust verið vonsvikin með úrslit kvöldsins, en bæði lið urðu að sætta sig við eitt stig í 5. umferð deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu.
Englandsmeistarar Arsenal gerðu 1-1 jafntefli við Borussia Dortmund á Emirates-leikvanginum í Meistaradeild Evrópu í kvöld.
Sænski framherjinn Viktor Gyökeres kom Arsenal yfir strax á 10. mínútu með stórglæsilegu marki. Hann lét þá vaða fyrir utan vítateiginn og boltinn sveif í fallegum boga yfir Gregor Kobel í marki Dortmund.
Bæði lið fengu ágæt færi í fyrri hálfleiknum, en fleiri urðu mörkin ekki og Arsenal leiddi 1-0 í leikhléi.
Dortmund mætti hins vegar af miklum krafti til síðari hálfleiks. Max Beier fór fyrst illa með gott færi, en bætti heldur betur fyrir það nokkrum mínútum síðar. Joane Gadou átti þá laglegt hlaup og sendi boltann á Beier sem jafnaði metin.
Jobe Bellingham kom síðan boltanum í netið fyrir Dortmund þegar hann hirti frákast eftir að Kepa hafði varið skot frá Julian Ryerson, en markið var dæmt af vegna rangstöðu.
Bæði lið fengu tækifæri til að tryggja sér sigurinn þegar leið á síðari hálfleikinn, en hvorugu tókst að nýta færin og niðurstaðan varð 1-1 jafntefli.
Arsenal situr í fimmta sæti deildarkeppninnar með ellefu stig, en Dortmund er í sjöunda sæti með tíu stig.
Rayan Cherki bjargaði þá stigi fyrir Manchester City í 2-2 jafntefli gegn Napoli á Etihad-leikvanginum.
Eftir markalausan fyrri hálfleik voru það gestirnir frá Ítalíu sem brutu ísinn. Rasmus Höjlund, fyrrum leikmaður Manchester United, kom Napoli yfir eftir undirbúning Billy Gilmour.
Ayyoub Bouaddi jafnaði metin á 67. mínútu þegar hann fékk boltann frá Jeremy Doku inni í vítateignum, en Napoli var ekki lengi að svara. Noa Lang kom gestunum aftur yfir áður en Cherki bjargaði stigi fyrir City með marki undir lok venjulegs leiktíma.
Það gengur lítið hjá Man City þessa dagana, en liðið hefur nú leikið þrjá leiki í röð án sigurs í öllum keppnum. City situr í sjötta sæti deildarkeppninnar með tíu stig.
Real Madrid vann þá magnaðan 5-1 endurkomusigur á PSV á Santiago Bernabeu.
Ivan Perisic kom PSV yfir úr vítaspyrnu á 32. mínútu og gestirnir héldu forystunni út fyrri hálfleikinn.
Jose Mourinho var hins vegar ekki sáttur og gerði þrefalda skiptingu í leikhléi sem átti eftir að gjörbreyta leiknum. Ibrahima Konate, Jude Bellingham og Dean Huijsen komu allir inn á og eftir það fóru hlutirnir heldur betur að gerast.
Federico Valverde, Jude Bellingham og Kylian Mbappe skoruðu þrjú mörk á aðeins fjórtán mínútum og sneru leiknum algjörlega við.
Mbappe bætti síðan við sínu öðru marki undir lokin áður en Vini Jr rak síðasta naglann í kistu PSV með fimmta marki Madrídinga.
Real Madrid trónir á toppi deildarkeppninnar með fullt hús stiga.
Í öðrum leikjum kvöldsins vann RB Leipzig 3-1 sigur á Lens, Como marði 1-0 sigur á AEK, Real Betis lagði Slovan Bratislava 2-0 og Porto hafði betur gegn Feyenoord, 1-0.
Arsenal 1 - 1 Borussia D.
1-0 Viktor Gyokeres ('10 )
1-1 Maximilian Beier ('55 )
Como 1 - 0 AEK
0-0 Lucas Da Cunha ('29 , Misnotað víti)
1-0 Luis Milla ('57 )
Feyenoord 0 - 1 Porto
0-1 Oussama Targhalline ('2 , sjálfsmark)
Manchester City 2 - 2 Napoli
0-1 Rasmus Hojlund ('55 )
1-1 Ayyoub Bouaddi ('67 )
1-2 Noa Lang ('76 )
2-2 Rayan Cherki ('86 )
RB Leipzig 3 - 1 Lens
1-0 David Raum ('6 )
2-0 Antonio Nusa ('9 )
2-1 Matthieu Udol ('58 )
3-1 Antonio Nusa ('90 )
Real Madrid 5 - 1 PSV
0-1 Ivan Perisic ('32 , víti)
1-1 Federico Valverde ('50 )
2-1 Jude Bellingham ('60 )
3-1 Kylian Mbappe ('64 )
4-1 Kylian Mbappe ('84 )
5-1 Vinicius Junior ('87 )
Slovan 0 - 2 Betis
0-1 Cucho Hernandez ('43 )
0-2 Cucho Hernandez ('57 )

Meistaradeildin
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Real Madrid | 5 | +10 | 15 |
| 2 | PSG | 4 | +15 | 12 |
| 3 | Como | 5 | +14 | 12 |
| 4 | Betis | 5 | +4 | 12 |
| 5 | Arsenal | 5 | +5 | 11 |
| 6 | Man City | 5 | +5 | 10 |
| 7 | Dortmund | 5 | +2 | 10 |
| 8 | Barcelona | 4 | +8 | 9 |
| 9 | Aston Villa | 5 | +5 | 9 |
| 10 | Liverpool | 4 | +4 | 9 |
| 11 | Club Brugge | 4 | +4 | 9 |
| 12 | Sporting | 4 | +4 | 9 |
| 13 | Galatasaray | 5 | 0 | 9 |
| 14 | Bayern | 4 | +7 | 8 |
| 15 | Stuttgart | 4 | +3 | 7 |
| 16 | Bodö/Glimt | 5 | -4 | 7 |
| 17 | Inter | 4 | +2 | 6 |
| 18 | LASK Linz | 5 | 0 | 6 |
| 19 | Man Utd | 4 | 0 | 6 |
| 20 | Porto | 5 | 0 | 6 |
| 21 | RB Leipzig | 5 | -4 | 6 |
| 22 | Fenerbahce | 4 | -5 | 5 |
| 23 | Roma | 4 | +2 | 4 |
| 24 | Shakhtar D | 4 | 0 | 4 |
| 25 | Viking FK | 4 | -1 | 4 |
| 26 | Atletico Madrid | 4 | -1 | 4 |
| 27 | PSV | 5 | -5 | 4 |
| 28 | Napoli | 5 | -5 | 4 |
| 29 | Villarreal | 4 | -6 | 3 |
| 30 | Sabah FK | 4 | -6 | 3 |
| 31 | AEK | 5 | -7 | 3 |
| 32 | Feyenoord | 5 | -8 | 3 |
| 33 | Lens | 5 | -14 | 3 |
| 34 | Slavia Prag | 4 | -4 | 1 |
| 35 | Lille | 4 | -6 | 1 |
| 36 | Slovan | 5 | -18 | 0 |