01.11.26 - 14:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Svíarnir gætu farið frá Fram

Simon Tibbling

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jakob Byström

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Simon Tibbling

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Líkur eru á því að Svíarnir í leikmannahópi Fram muni yfirgefa félagið í vetur. Það eru þeir Simon Tibbling og Jakob Byström. Báði eru þeir með áframhaldandi samninga.
Miðjumaðurinn Tibbling átti frábært fyrsta tímabil á Íslandi, var valinn í lið ársins 2025. Hann er stór prófíll sem kom til Íslands eftir að hafa glímt við erfið meiðsli.
Á þessu tímabili byrjaði hann fyrstu sjö deildarleikina en eftir það var hlutverkið frekar takmarkað. Hann varð svo fyrir höfuðmeiðslum í Vestmannaeyjum og spilaði í fimm af síðustu tíu leikjum tímabilsins.
Samkvæmt heimildum Fótbota.net eru Framarar tilbúnir að hlusta í tilboð í miðjumanninn sem fæddur er 1994.

Byström átti mjög eftirtektarvert tímabil 2025, spilaði ekki mjög mikið en skoraði mjög reglulega, alls áta mörk, og oft mikilvæg mörk. Hann er fæddur 2005 og vill spila mun meira en hann gerði á þessu tímabili. Líkurnar á stærra hlutverki eru ekki miklar eftir komu Emils Atlasonar til Fram.
Það var áhugi á Byström á tímabilinu og hafnaði hann möguleikanum á því að fara á láni. Tímabilið byrjaði vel með magnaðri hjólhestaspyrnu í vetur og skoraði svo mörk sem tryggðu sigra gegn bæði Val og Breiðabliki snemma móts.
Mínúturnar voru ekki margar fyrir sænska framherjann og félög eins og Valur, Þór, KA og Stjarnan sýndu honum áhuga í sumr en ekkert varð úr því að hann færi.
Á tveimur tímabilum hefur Byström skorað 0,65 mörk á hverjum 90 mínútum spiluðum. Hann vill spila meira og er hann opinn fyrir því að spila utan Íslands ef hann verður ekki hér áfram. Það var áhugi frá Svíþjóð fyrir nýliðið tímabil og spurning hvort hann fari þangað aftur. Líkt og með Tibbling er Fram samkvæmt heimildum Fótbolta.net tilbúið að hlusta á tilboð í leikmanninn.