26.11.26 - 20:31
Ívan Guðjón Baldursson
Darwin Núnez ekki búinn að skora í sjö leikjum í röð
Fyrrum úrvalsdeildarleikmenn tengdu í sigri Al-Shabab

Mynd: Al Hilal

Mynd: EPA

Mynd: Al Hilal
Darwin Núnez er ekki að finna taktinn í sádi-arabíska boltanum. Hann er með fast sæti í byrjunarliðinu hjá Al-Diriyah en er aðeins kominn með 3 mörk í 11 deildarleikjum á tímabilinu.
Hann lék allan leikinn í 2-2 jafntefli í dag án þess að komast á blað og var það sjöundi deildarleikurinn í röð sem honum mistekst að skora. Þessi fyrrum framherji Liverpool og Benfica hefur átt afar erfitt uppdráttar frá dvöl sinni í Liverpool en er enn fastamaður í landsliði Úrúgvæ - með 16 mörk í 46 leikjum.
Berat Djimsiti, Chancel Mbemba, Idrissa Gana Gueye, Enzo Millot og Óscar Rodríguez voru meðal byrjunarliðsmanna í liði Al-Diriyah sem er með 16 stig eftir 13 umferðir.
Josh Brownhill var þá hetjan þegar hann skoraði eina markið í sigri Al-Shabab, eftir stoðsendingu frá Daniele Podence. Fyrrum úrvalsdeildarleikmennirnir tengdu vel saman til að tryggja dýrmæt stig, en liðið er með 17 stig eftir 12 fyrstu umferðirnar á nýju tímabili.
Thomas Partey og Yacine Adli voru einnig í byrjunarliði Al-Shabab sem lagði Michy Batshuayi, Georges-Kevin N'Koudou og félaga í liði Abha að velli.
Al-Faisaly 2 - 2 Al-Diriyah
0-1 Clayton Diandy ('8)
0-2 Clayton Diandy ('45+3)
1-2 Alexandre Mendy ('71)
2-2 Theo Bongonda ('89)
Abha 0 - 1 Al-Shabab
0-1 Josh Brownhill ('39)
Al-Fateh 1 - 0 Al-Riyadh
1-0 Mourad Batna ('70)