Ingvar Jónsson er látinn


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ingvar greindist með krabbamein fyrr á árinu.
Tilkynning frá Víkingi:
Það er með miklum söknuði og djúpri sorg sem við greinum frá því að okkar kæri vinur og samherji Ingvar Jónsson, markvörður Víkings, lést miðvikudaginn 25. nóvember, í faðmi sinna nánustu.
Hugur félagsins og allra Víkinga er hjá fjölskyldu hans og ástvinum. Við sendum þeim okkar dýpstu samúðarkveðjur.
Virðingarfyllst.
Knattspyrnufélagið Víkingur
Ingvar var einn besti markvörður Íslands um margra ára skeið og var sigursæll á ferli sínum. Fimm sinnum varð hann Íslandsmeistari, einu sinni með Stjörnunni og fjórum sinnum með Víkingi.
Hér að neðan má sjá myndir frá ferli hans.

Ingvar var uppalinn í Njarðvík og sást fljótt að um bráðefnilegan markvörð væri að ræða. Hann lék með U19 landsliði Íslands og á einn U21 landsleik.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ingvar á sínu síðasta tímabili hjá Njarðvík, 2010.

Mynd: Fótbolti.net - Sölvi Logason

Fyrir tímabilið 2011 gekk hann í raðir Stjörnunnar.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Eftir leik á Akranesi 2013.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hér er hann í viðtali í beinni útsendingu í útvarpsþættinum Fótbolti.net strax eftir að Stjarnan vann Íslandsmeistaratitilinn 2014.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ingvar var valinn besti leikmaður Íslandsmótsins 2014 þegar hann var í lykilhlutverki í Íslandsmeistaratitli Stjörnunnar.

Mynd: Ingólfur Hannes Leósson

Ingvar lék átta A-landsleiki fyrir Ísland.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ingvar var í leikmannahópi Íslands sem náði mögnuðum árangri á EM 2016.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ólafur Ingi Skúlason og Ingvar Jónsson fyrir landsleik á Möltu.

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í janúar 2020 gekk hann í raðir Víkings.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bikarúrslitaleikur á Laugardalsvelli 2021.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bikarúrslitaleikur á Laugardalsvelli 2021.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hann varð þrívegis bikarmeistari með Víkingi.

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bikarmeistarar 2022.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bikarmeistari 2022.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Íslandsmeistarar Víkings 2023.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

2024

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í Evrópuleik gegn Panathinaikos í Helsinki 2025.

Mynd: Víkingur


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íslandsmeistarar 2025. Ingvar varð fimm sinnum Íslandsmeistari.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
