26.11.26 - 14:53
Elvar Geir Magnússon
Gagnagreinandi Man Utd sannaði að Isak hefði aldrei getað náð boltanum

Gagnagreinandinn Michael Sansoni.

Mynd: Man Utd

Leny Yoro eftir að hann fékk rautt.

Mynd: EPA

Gagnagreinandinn Michael Sansoni.

Mynd: Man Utd
Daily Mail segir frá því hvernig Manchester United leitaði til gagnagreinanda innan félagsins til að sýna fram á að Alexander Isak, sóknarmaður Liverpool, hefði ekki átt neinn möguleika að ná til boltans í atvikinu þegar Leny Yoro fékk rautt á sunnudaginn.
Yoro fékk rautt spjald gegn Liverpool þar sem dómarinn Sam Barrott taldi hann hafa rænt upplögðu marktækifæri. VAR studdi ákvörðunina og taldi ekki um augljós mistök að ræða.
United áfrýjaði og vann málið svo leikbann Yoro var látið falla niður. Nú hefur verið opinberað hvaða sönnunargögn United lagði fram til aganefndarinnar.
United sendi inn þrjú háskerpumyndskeið af umræddu atviki, þar sem notuð voru mörg mismunandi sjónarhorn. Þá var sent inn atvik frá því fyrr á tímabilinu þegar Pascal Struijk, leikmaður Brighton, fékk rautt spjald en leikbannið var fellt niður.

TENGT EFNI
Leikbanni Yoro aflétt
En það áhugaverðasta kom frá Michael Sansoni, gagnagreindanda félagsins. Sansoni var ráðinn til Manchester United frá Mercedes í Formúlu 1 kappakstrinum þar sem gott orð fór af honum.
Sansoni greindi út frá hraða Isak og stefnu hvort hann hefði átt möguleika á því að ná til boltans á undan Senne Lammens markverði United. Niðurstaðan var sú að hann hefði verið 1,8 metra frá því að ná til boltans þó hann hefði náð öllum mögulegum hraða og stefnu.
Þegar nefndin hafði skoðað öll gögn þá samþykkti hún að Yoro hefði ekki rænt upplögðu marktækifæri og því ekki átt að fá rautt spjald.

How Man United's data gurus got Leny Yoro off the hook: Stats analysis from ex-Formula One boffin proved Alexander Isak had NO chance of reaching the ball before red card - in appeal win that has left refs fuming https://t.co/lf1GKv1hZw
— Daily Mail Sport (@MailSport) November 26, 2026

Leny Yoro eftir að hann fékk rautt.

Mynd: EPA