Fotbolti.net
26.11.26 - 11:31
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Segir að Freysi taki Davíð Snorra með sér til Swansea

Freysi og Davíð Snorri.

Freysi og Davíð Snorri.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Freyr Alexandersson er sterklega orðaður við Swansea og er búist við því að hann taki við velska liðinu eftir leik Rosenborg gegn Molde um helgina. Ef Rosenborg vinnur þann leik fer liðið mjög langt með að innsigla Evrópusæti á næsta tímabili.

Swansea er í ensku B-deildinni, Championship.

Hjörvar Hafliðason sagði í Dr. Football í dag að hann hefði heyrt að Davíð Snorri Jónasson, aðstoðarþjálfari landsliðsins, færi með Frey til Wales.

„Miðað við það sem ég hef heyrt er hann að taka Davíð Snorra með sér," sagði Hjörvar í þættinum.

„Það hefur ekkert komið inn á mitt borð," segir Jörundur Áki Sveinsson við Fótbolta.net en hann er yfirmaður fótboltamála hjá KSÍ.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hefur Freyr hlerað fleiri íslenska þjálfara.
Freyr tjáir sig: Draumur minn að þjálfa í ensku deildinni
TENGT EFNI

Freyr tjáir sig: Draumur minn að þjálfa í ensku deildinni

Freyr og Davíð Snorri eru góðir vinir og hafa unnið saman áður en þeir stýrðu Leikni upp í efstu deild fyrir rúmum áratug og voru þá saman með liðið.

Árið 2017 starfaði svo Davíð Snorri sem leikgreinandi og njósnari í teymi Freys fyrir íslenska kvennalandsliðið á EM í Hollandi.

Freyr hefur verið þjálfari Rosenborg frá því í júní og hefur náð frábærum árangri með liðið. Hann hefur unnið 14 af 19 leikjum í starfi og komið Rosenborg úr 15. sæti í 4. sæti norsku úrvalsdeildarinnar.

Davíð Snorri hefur verið aðstoðarlandsliðsþjálfari í um tvö og hálft ár.
Davíð Snorri.

Davíð Snorri.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough17+1435
2Stoke City17+835
3Wolves17+1234
4Birmingham17+1532
5West Brom17+1032
6Southampton17+1628
7QPR17+728
8Swansea17+327
9Sheffield Utd17+626
10Portsmouth17+326
11Norwich17+925
12Blackburn17025
13West Ham17+1324
14Wrexham17-122
15Charlton Athletic17-720
16Bristol City17-1019
17Cardiff City17-518
18Millwall17-618
19Bolton17-1118
20Watford17-1515
21Lincoln City17-1615
22Preston NE17-1312
23Burnley17-1111
24Derby County17-2110
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.