26.11.26 - 21:00
Ívan Guðjón Baldursson
Brighton vill úkraínskan táning sem minnir á Haaland

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Brighton er að reynast spútnik lið úrvalsdeildartímabilsins og er sterklega orðað við úkraínska táninginn Artem Stepanov.
Stepanov er hávaxinn framherji og minnir leikstíll hans óneitanlega á Erling Haaland, stóran framherja Manchester City og norska landsliðsins.
Stepanov er 19 ára gamall og samningsbundinn Bayer Leverkusen en leikur á láni hjá FC Utrecht í hollenska boltanum.
Hann fór upprunalega til Utrecht á láni á seinni hluta síðasta tímabils og fékk hollenska félagið að framlengja lánssamninginn til sumarsins 2027.
Táningurinn er 192sm á hæð, þremur sentimetrum lægri en Haaland, og hefur skorað 6 mörk í 10 deildarleikjum á upphafi tímabils. Hann skoraði fimm mörk í fyrstu fimm leikjunum áður en hann meiddist á ökkla og er nýbyrjaður að skora aftur eftir að hafa náð fullum bata.
Stepanov á 9 mörk í 20 leikjum fyrir yngri landslið Úkraínu og getur Utrecht fest kaup á honum fyrir svo lítið sem 2 milljónir evra næsta sumar - en Bayer Leverkusen heldur 4 milljóna endurkaupsrétti.
Það gæti því endað þannig að Stepanov verður keyptur til Utrecht, aftur til Leverkusen og síðan seldur þaðan til Brighton.
Stepanov var valinn í úkraínska landsliðshópinn fyrir landsleikjahléð í september en neyddist til að draga sig úr hópnum vegna ökklameiðslanna. Þá var hann ekki í nægilega góðu standi til að vera valinn í A-landsliðið í landsleikjahlénu í nóvember.
Sky Sports er meðal fjölmiðla sem greina frá.