Fotbolti.net
26.11.26 - 19:52
Ívan Guðjón Baldursson

Evrópudeildin: Tíu leikmenn Bournemouth unnu á Spáni

Evrópudeildin: Tíu leikmenn Bournemouth unnu á Spáni
Canon

Mynd: EPA

Fyrstu átta leikjum kvöldsins í Evrópudeildinni var að ljúka og tókst Bournemouth að vinna magnaðan sigur á útivelli gegn Celta Vigo eftir að hafa lent marki undir og misst mann af velli.
Pablo Durán skoraði fyrir heimamenn í Celta en markið ekki dæmt gilt vegna rangstöðu og skömmu síðar geri gamla kempan Iago Aspas löglegt mark til að taka forystuna.

Þremur mínútum eftir markið fékk Bafodé Diakité beint rautt spjald fyrir alvarlegt brot og var staðan 1-0 í leikhlé fyrir Celta gegn tíu leikmönnum Bournemouth, sem tókst að koma til baka á ótrúlegan hátt í seinni hálfleik.

Álvaro Rodríguez jafnaði metin í upphafi síðari hálfleiks áður en Rayan setti sigurmark á lokakaflanum eftir góðan undirbúning frá Marcus Tavernier. Lokatölur urðu því 1-2 fyrir tíu leikmenn Bournemouth, sem eru með fullt hús stiga eftir fimm umferðir á deildartímabilinu. Celta er aðeins með þrjú stig.

AC Milan lenti þá tveimur mörkum undir á útivelli gegn Olympiakos en Omari Hutchinson leiddi endurkomuna með marki og tveimur stoðsendingum. Lærlingar Rúben Amorim skoruðu fjögur mörk í síðari hálfleiknum og eru aðeins með sex stig eftir fimm leiki - fjórum stigum á eftir Olympiakos.

Benfica tapaði óvænt gegn Viktoria Plzen í Tékklandi en Portúgalirnir voru með fullt hús stiga fyrir leikinn. Þetta var annar sigur Plzen í röð og er liðið með sex stig.

Bayer Leverkusen og Marseille unnu sína leiki og þá er Besiktas enn að spila.

Celta 1 - 2 Bournemouth
1-0 Iago Aspas ('19 )
1-1 Alvaro Rodriguez ('47 )
1-2 Rayan ('78 )
Rautt spjald: Bafode Diakite, Bournemouth ('22)

Plzen 4 - 0 Benfica
1-0 Patrik Hrosovsky ('30 )
2-0 Prince Kwabena Adu ('43 )
3-0 Christophe Kabongo ('44 )
4-0 Christophe Kabongo ('46 )

Dinamo Zagreb 0 - 2 Bayer Leverkusen
0-1 Malik Tillman ('10 )
0-2 Jarell Quansah ('45 )

Olympiakos 2 - 4 Milan
1-0 Mike Maignan ('31 , sjálfsmark)
2-0 Jota Silva ('49 )
2-1 Omari Hutchinson ('56 )
2-2 Alphadjo Cisse ('63 )
2-3 Christian Pulisic ('71 )
2-4 Diego Moreira ('90 )

Marseille 1 - 0 Levski Sofia
1-0 Amine Gouiri ('28 , víti)
1-0 Amine Gouiri ('51 , Misnotað víti)

Salzburg 2 - 0 Ararat-Armenia
1-0 Bartosz Mazurek ('47 )
2-0 Bartosz Mazurek ('51 )
2-0 Karim Konate ('90 , Misnotað víti)

St. Gilloise 2 - 2 Lech Poznan
0-1 Yannick Agnero ('15 )
0-2 Luis Palma ('18 )
0-2 Raul Florucz ('29 , Misnotað víti)
1-2 Raul Florucz ('54 )
2-2 Kevin Rodriguez ('66 )
Evrópudeildin: Tíu leikmenn Bournemouth unnu á Spáni
Canon

Mynd: EPA

Evrópudeildin: Tíu leikmenn Bournemouth unnu á Spáni
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.