26.11.26 - 20:40
Elvar Geir Magnússon
Sakaður um að hafa dæmt fullur en neitar staðfastlega

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Sýrlenski dómarinn Hanna Hattab er sakaður um að hafa verið blindfullur þegar hann dæmdi leik íranska liðsins Gol Gohar og Al Jazira frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum í Asíukeppni.
Fullyrðingarnar um að hann hafi dæmt fullur er að sögn umsjónarmanna keppninnar „algerlega úr lausu lofti gripnar“.
Hegðun og nokkrar ákvarðanatökur Hattab þóttu ansi furðulegar og honum var skipt út í hálfleik. Fjórði dómarinn tók við flautunni og dæmdi seinni hálfleik.

Þjálfari Gol Gohar hrópaði nokkrum sinnum inn á völlinn að dómarinn væri ölvaður og ásakanirnar fóru líka víða um samfélagsmiðla.
Hattab neitar því alfarið að hafa verið undir áhrifum í starfi og segist ætla að senda frá sér yfirlýsingu með útskýringum. Talað hefur um að hann hafi orðið fyrir blóðskykurfalli og misst einbeitingu.
Ein furðulegasta ákvörðun hans í leiknum var að gefa markverðinum gult spjald eftir brot sem átti sér stað á miðjum vellinum.

An Asian Champions League referee has been subbed out for alleged drunkenness. https://t.co/cRY9lsahn0
— 10 Sport (@10SportAU) November 26, 2026